Orri tjáir sig um agamálið: Eitthvað sem hópurinn átti að taka á saman

Kallaði leikmenn saman á fund fyrir lokaleik síðasta verkefnis.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mér fannst vel tekið á þessu hjá okkur innanborðs og við höldum jákvæðni í þessum glugga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir vikið held ég að við verðum töluvert sterkari hópur eftir þetta

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það var auðvitað mikil hjálp frá eldri leikmönnum: Aroni, Gylfa og Gulla, þeir eru eins og pabbar fyrir okkur alla og hugsa vel um okkur. Þeir hjálpa mér þegar ég þarf á þeim að halda. Ég er þeim mjög þakklátur

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kallaði leikmenn saman á fund fyrir lokaleik síðasta verkefnis.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenska karlalandsliðið er að koma saman á La Finca hótelinu á Spáni og undirbýr sig þar fyrir leiki gegn Búlgaríu og Lúxemborg í Þjóðadeildinni. Orri flaug frá San Sebastian í dag, stutt og þægilegt ferðalag.
Fyrst spilar landsliðið í Búlgaríu á föstudag og svo er heimaleikur á mánudag. Ísland er á toppi riðilsins eftir fyrstu fjóra leikina, með átta stig.

Arnar lofsyngur Orra - „Margar efasemdir þegar ég valdi hann sem fyrirliða“
„Mér fannst við sýna það með frammistöðunni síðast hvar standardinn er, hvernig við viljum spila og hvað „levelið" okkar getur verið. Standardinn verður að vera í öllum leikjum, við viljum halda því áfram og með þeim standard ættum við að ná sigri í öllum leikjum í þessum riðli."
Orri var spurður út í agamálið sem kom upp í síðasta landsliðsverkefni. Finnst þér aukin pressa á liðinfu að gera vel í þessum glugga?
„Fyrst og fremst er mjög leiðinlegt að þetta kom upp, svekkjandi fyrir okkur leikmennina. Við erum klárlega ekki að gera okkur auðvelt fyrir með þessu. Pressan þarf alltaf að vera til staðar, utan frá eða innan frá, það þarf að nýta hana til góðs og ná í góð úrslit með því. Hvort sem það sé fótboltatengt eða ekki, þá verður alltaf að vera pressa á okkur að ná í úrslit og sama í hvort það sé í C, B, eða A-deild. Við viljum reyna ná í eins góð úrslit og hægt er."
Orri kallaði leikmannahópinn saman á fund úti í Tallinn fyrir lokaleik síðasta verkefnis og þar var farið yfir málin.
„Mér fannst einhvern veginn að ég ætti að taka smá frumkvæði, aðeins að þjappa hópnum saman. Stundum kemur svona til manns. Mér fannst þetta vera eitthvað sem leikmannahópurinn átti að taka á saman og mér fannst það heppnast mjög vel innan hópsins. Fyrir vikið held ég að við verðum töluvert sterkari hópur eftir þetta. Það var auðvitað mikil hjálp frá eldri leikmönnum: Aroni, Gylfa og Gulla, þeir eru eins og pabbar fyrir okkur alla og hugsa vel um okkur. Þeir hjálpa mér þegar ég þarf á þeim að halda. Ég er þeim mjög þakklátur."
„Auðvitað ætti þetta aldrei að gerast og ég held að allir í hópnum séu meðvitaðir um það. Á einhverjum tímapunkti þurfum við að horfa á þetta sem lærdóm fyrir alla og gera hluti sem koma í veg fyrir að þetta gerist aftur. Ég held að leiðin sem var farin þegar þetta var tæklað hafi verið mjög góð; hjá liðinu, stjórninni og starfsteyminu. Mér fannst vel tekið á þessu hjá okkur innanborðs og við höldum jákvæðni í þessum glugga."
Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson talaði um Orra sem svalasta fyrirliða Evrópu á fréttamannafundi í liðinni viku.
„Það eru stór orð, en auðvitað bara geggjað að heyra svona. Ég hef ekki reynt að breyta mér mikið sem leikmanni eða persónu frá því ég byrjaði í þessu, en auðvitað kemur aukin ábyrgð og fullt af hlutum sem maður þarf að taka að sér. Ég reyni einhvern veginn að sigla því skipi, líka með hjálp annarra. Ég reyni að hjálpa. Ég reyni að hjálpa strákunum í öllu og vera til staðar fyrir þá. Ég held það sé það mikilvægasta," segir landsliðsfyrirliðinn.
Viðtalið er talsvert lengra og má sjá í heild sinni í spilaranum efst.

Mér fannst vel tekið á þessu hjá okkur innanborðs og við höldum jákvæðni í þessum glugga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir vikið held ég að við verðum töluvert sterkari hópur eftir þetta

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það var auðvitað mikil hjálp frá eldri leikmönnum: Aroni, Gylfa og Gulla, þeir eru eins og pabbar fyrir okkur alla og hugsa vel um okkur. Þeir hjálpa mér þegar ég þarf á þeim að halda. Ég er þeim mjög þakklátur

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

