Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Albert: Þetta var ekki auðvelt
Jón Dagur: Alvaran hefst í haust
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
   mán 10. júní 2019 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Haukur Harðar: Hélt það yrðu meiri læti
Icelandair
Haukur Harðarson.
Haukur Harðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úr leik Íslands og Albaníu.
Úr leik Íslands og Albaníu.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Ísland mætir Tyrklandi í mikilvægum leik í undankeppni EM á Laugardalsvelli annað kvöld.

Haukur Harðarson, íþróttafréttamaður RÚV, ræddi við Fótbolta.net um leikinn.

Ísland vann góðan sigur á Albaníu, 1-0, síðastliðinn laugardag.

„Liðið stóðst prófið að mínu mati. Þetta var það sem ég vildi allavega fá út úr leiknum, líka bara til að gera leikinn annað kvöld meira sexý," sagði Haukur um leikinn gegn Albaníu.

„Mér fannst fyrri hálfleikur flottur. Hann minnti á gamla góða tíma. Við hefðum getað haldið boltanum betur í seinni hálfleiknum, en það er eitthvað sem maður nennir ekki að staldra lengi við. Þetta er allt annað verkefni á móti Tyrkjum og miklu erfiðara. Með fullri virðingu fyrir Albaníu þá er tyrkneska liðið í öðrum gæðaflokki."

Haukur sér fyrir sér að það gætu orðið breytingar á byrjunarliðinu. Birkir Bjarnason og Jóhann Berg Guðmundsson eru tæpir.

Smelltu hér til að sjá líklegt byrjunarlið að mati Fótbolta.net.

„Ég gæti séð fyrir mér eina eða tvær breytingar, kannski önnur þeirra ekki komin til af góðu. Jóhann Berg virðist vera mjög tæpur. Hann er einn okkar allra mikilvægasti leikmaður. Hann og Gylfi ná svo mjög vel saman. Svo er spurning hvort hann haldi Viðari Erni upp á topp eða fái einhvern vinnuhest upp á topp."

Tyrkir koma inn í leikinn á móti Íslandi eftir sigur gegn Heimsmeisturum Frakklands á heimavelli.

„Þetta var týpiskt. Verkefnið gæti ekkert verið ólíkara fyrir þá heldur. Þeir voru litla liðið gegn Frökkum, verjast og beita skyndisóknum. Þeir eru ekki að fara að koma hingað og gera það nákvæmlega sama. Ég horfi ekkert of mikið í þennan Frakkaleik."

„Síðan Senol Gunes, þjálfarinn sem vann brosnið með þá á HM 2002, tók við Tyrkjum hafa þeir unnið fimm í röð. Að vísu bara einn á útivelli. Vonandi kemur fyrsta tapið hjá honum á morgun."

Augljóslega ekki Íslendingur
Mál málanna í kringum þennan leik er það sem gerðist á Keflavíkurflugvelli í gær.

Tyrknesku landsliðsmennirnir voru ósáttir með það hversu lengi þeir þurftu að bíða á flugvellinum í gær. Þeir þurftu að fara í gegnum vegabréfaskoðun og öryggisleit þar sem þeir voru að koma frá óvottuðum flugvelli í Konya.

Leikmenn Tyrklands lýstu yfir óánægju sinni á samfélagsmiðlum og skapaði það mikla reiði á meðal stuðningsmanna. Þá er einnig mikil reiði vegna þess að einhver einstaklingur beindi þvottabursta að fyrirliða Tyrklands þegar hann var að ræða við fjölmiðlamenn í Leifsstöð.

„Ég hélt að það yrðu meiri læti (á fréttamannafundinum í dag). Það komu bara tvær spurningar frá tyrkneskum blaðamanni. Ég þekki ekki merkingu uppþvottaburstans eins og margir aðrir Íslendingar. Maður áttar sig ekki á því í hverju móðgunin felst."

„Augljóslega er þetta ekki Íslendingur sem heldur á burstanum, mér sýnist þetta vera ferðamaður. Það hafa gríðarlega margir lagt orð í belg," sagði Haukur.

Viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner