Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 10. júní 2026 03:07
Ívan Guðjón Baldursson
Heimsmeistararnir alltof sterkir fyrir Ísland
Icelandair
Argentínska landsliðið er stútfullt af hæfileikaríkum fótboltamönnum.
Argentínska landsliðið er stútfullt af hæfileikaríkum fótboltamönnum.
Mynd: EPA
Ísland tapaði báðum vináttulandsleikjunum í landsleikjahlénu, eftir að hafa gert jafntefli við Kanada og Haítí í mars.
Ísland tapaði báðum vináttulandsleikjunum í landsleikjahlénu, eftir að hafa gert jafntefli við Kanada og Haítí í mars.
Mynd: EPA
Argentína 3 - 0 Ísland
1-0 Valentín Barco ('8)
2-0 Lionel Messi ('72, víti)
3-0 Tomás Aranda ('86)

Lestu um leikinn: Argentína 3 -  0 Ísland

Strákarnir okkar spiluðu vináttulandsleik við Argentínu í nótt og byrjuðu vel. Mikael Egill Ellertsson fékk fyrsta færi leiksins eftir góða skyndisókn en marktilraun hans flaug yfir markið.

Skömmu síðar tók Valentín Barco, leikmaður Strasbourg sem er sterklega orðaður við Chelsea, forystuna fyrir heimsmeistarana þegar boltinn datt til hans eftir atgang í vítateig Íslands. Barco skoraði með viðstöðulausu og hnitmiðuðu skoti sem endaði í vinstra horninu.

Það var lítið að frétta í bragðdaufum fyrri hálfleik. Argentínumenn héldu boltanum og sköpuðu nokkur hálffæri en staðan var 1-0 í leikhlé.

Argentína gerði sex skiptingar í hálfleik og Ísland eina og þrýstu heimsmeistararnir á íslenska liðið. Nico Paz komst í dauðafæri, Alexis Mac Allister átti skot í stöng og svo átti Lautaro Martínez skot í stöng áður en hann fiskaði vítaspyrnu eftir úthlaup Elíasar Rafns Ólafssonar sem var dæmdur brotlegur.

Lionel Messi var nýkominn inn af bekknum og steig að sjálfsögðu á vítapunktinn. Hann skoraði en Elías Rafn var ekki langt frá boltanum.

Arnar Gunnlaugsson gerði sexfalda breytingu á 81. mínútu en varamönnunum tókst ekki að minnka muninn. Þess í stað skoraði Tomás Amanda eftir stoðsendingu frá Rodrigo De Paul á til að innsigla 3-0 sigur. Íslenska vörnin var gjörsamlega sundurspiluð.

Þetta var síðasti leikur Argentínu fyrir titilvörnina á HM. Stórveldið er í riðli með Alsír, Austurríki og Jórdaníu og hefur leik gegn Alsír 17. júní.
Slapp
banner
banner
banner