Orri Steinn Óskarsson, landsliðsfyrirliði Íslands, vildi meina að innkoma Lionel Messi í 3-0 tapinu gegn Argentínu hafi skipt sköpum í tapi liðsins gegn heimsmeisturunum í Alabama í nótt.
„Auðvitað er svekkjandi að við náðum ekki að halda þessu aðeins minni, úrslitunum. Yfir allt þá getum við verið ánægðir með frammistöðuna, hvernig við bárum okkur og hvernig við mættum besta landsliði í heimi, þannig að ég er yfir allt jákvæður og sáttur með liðið,“ sagði Orri í viðtali við Fotbolti.net eftir leik.
„Þeir sýndu gæðin sín á síðasta þriðjung. Þegar einn ákveðinn aðili kemur inn á þá breytist leikurinn svolítið og hlutirnir fara að tikka. Við verðum bara að virða það og gefa honum kredit. Við hefðum vel getið haldið þeim í 1-0 en svekkjandi að fá á sig annað og þriðja markið,“ bætti Orri við og átti þar við Messi, sem kom inn af varamannabekknum á 70. mínútu.
„hann byrjar að skapa mikinn usla á milli línanna hjá okkur og kom með eitthvað sem þeim hafði vantaði í leiknum. Mér fannst við loka á þá mjög vel en svo þegar hann kemur inn á þá náðum við ekki að halda [aftur á honum] nógu vel. Hann er náttúrlega bara eins og hann er og maður verður bara að virða það,“ sagði Orri Steinn Óskarsson, landsliðsfyrirliði Íslands.
Viðtalið við Orra má nálgast í spilaranum hér að ofan.






















