Vålerenga 2 - 0 Roa
Ingibjörg Sigurðardóttir var í byrjunarliði Vålerenga í kvöld þegar liðið sigraði Roa á heimavelli í 2. umferð Toppserien í Noregi. Ingibjörg lék allan leikinn.
Ingibjörg Sigurðardóttir var í byrjunarliði Vålerenga í kvöld þegar liðið sigraði Roa á heimavelli í 2. umferð Toppserien í Noregi. Ingibjörg lék allan leikinn.
Vålerenga tapaði í fyrstu umferð en er nú komið á blað í deildinni. Samkvæmt upplýsingum Flashscore lagði Ingibjörg upp annað mark leiskins fyrir Dejana Stefanovic en markið kom eftir hornspyrnu.
Toppserien er efsta deild í Noregi og næsti leikur Vålerenga er gegn Klepp eftir rúma viku. Ingibjörg gekk í raðir Vålerenga frá Djurgarden fyrir þessa leiktíð.
Sjá einnig:
Ingibjörg: Ákvað snemma að ég myndi ná langt
Athugasemdir