Fotbolti.net
10.08.21 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Benoný Breki í Bologna (Staðfest)

Bologna er mikið í því að sækja íslenska leikmenn.

Bologna er mikið í því að sækja íslenska leikmenn.

Canon

Mynd: Getty Images

Íslendinganýlendan á Ítalíu heldur áfram að stækka. Ungur sóknarmaður var að fá félagaskipti frá Breiðabliki til ítalska úrvalsdeildarfélagsins Bologna.
Leikmaðurinn sem um ræðir heitir Benoný Breki Andrésson og er fæddur árið 2005.

Hann er 15 ára gamall sóknarmaður sem hefur spilað með 2. flokki Blika í sumar. Hann er búinn að skora sjö deildarmörk í 11 leikjum með Blikum.

Hann er núna farinn til Bologna og kemur til með að vera í unglingaliðunum þar.

Núna eru fimm íslenskir leikmenn hjá Bologna; Andri Fannar Baldursson, Hlynur Freyr Karlsson, Gísli Gottskálk Þórðarson og Ari Sigurpálsson.

Sjá einnig:
Íslenska byltingin á Ítalíu: Getur reynst íslenskum fótbolta vel

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.