Fotbolti.net
<b>Úrvalslið ársins í Bestu deild kvenna 2023</b>
Kvennaboltinn

10.10.23

Úrvalslið ársins í Bestu deild kvenna 2023

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Úrvalslið ársins í Bestu deild kvenna var opinberað í Heimavellinum um síðustu helgi eftir að lokaumferð deildarinnar fór farm. Úrvalsliðið má sjá hér að neðan.

Tengt efni



Fanney Inga Birkisdóttir - Valur
Í markinu er einn efnilegasti markvörður landsins, ef ekki sá efnilegasti. Tók við keflinu af Söndru Sigurðardóttur fyrir tímabilið og fékk mikið traust. Hún stóð undir því trausti og gott betur. Frábært tímabil sem skilaði henni sæti í A-landsliðshópnum.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Breiðablik
Mjög hæfileikaríkur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum. Gerði það fyrir Blika í sumar og gerði það yfirleitt mjög vel. Náði að halda sig að mestu frá meiðslum spilað 22 leiki í Bestu deildinni í sumar, og skoraði þrjú mörk.

Málfríður Anna Eiríksdóttir - Valur
Einn vanmetnasti leikmaður deildarinnar. Eins og Hafrún, þá getur hún leyst margar stöður og líklega bara flestar stöður á vellinum. Kom til baka eftir meiðsli og átti frábært tímabil með Íslandsmeisturum Vals.
Bryndís Arna Níelsdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir.

Bryndís Arna Níelsdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arna Sif Ásgrímsdóttir - Valur
Hefur sannað það að hún er einn allra besti leikmaður deildarinnar og það er í raun kominn tími á að hún reyni aftur fyrir sér í atvinnumennsku. Er svo sannarlega með burði í að gera sig gildandi í mun sterkari deild.

Sædís Rún Heiðarsdóttir - Stjarnan
Ólsarinn sprakk svo sannarlega út í sumar og var besti leikmaður Stjörnunnar. Var ótal sinnum í liði umferðarinnar og vann sér inn sæti í A-landsliðshópnum nýverið. Sýndi ótrúlegan stöðguleika miðað við ungan leikmann.

Þórdís Elva Ágústsdóttir - Valur
Tók að sér stærra hlutverk í liði Vals og sýndi að hún hefur svo sannarlega getuna í það. Einn vanmetnasti leikmaður deildarinnar og á meira hrós skilið fyrir sína frammistöðu. Það kæmi ekki á óvart ef hún færi í atvinnumennsku eftir tímabilið.

Lára Kristín Pedersen - Valur
Var leikmaður ársins í fyrra og var aftur ótrúlega góð í ár. Er gríðarlega mikilvæg inn á miðsvæðinu fyrir Íslandsmeistara Vals og tókst að vinna sér inn sæti í A-landsliðshópnum.
Sædís Rún Heiðarsdóttir.

Sædís Rún Heiðarsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Katie Cousins - Þróttur R.
Lágvaxnasti leikmaður deildarinnar sem virðist vinna öll þau skallaeinvígi sem hún fer í. Hún er gríðarlega góð í fótbolta og sýndi það á vellinum í sumar.

Sandra María Jessen - Þór/KA
Það kæmi ekkert á óvart ef hún fer aftur út í atvinnumennsku í vetur. Er búin að gera ótrúlega vel í því að koma til baka eftir barnsburð og erfið meiðsli. Leiddi Þórs/KA liðið áfram upp í efri hluta deildarinnar.

Bryndís Arna Níelsdóttir - Valur
Markadrottning deildarinnar. Steig mikið upp og sýndi það að hún var tilbúin til að leiða línuna hjá Íslandsmeisturunum. Er samningslaus og það er spurning hvað gerist í hennar málum núna í vetur.

Agla María Albertsdóttir - Breiðablik
Næst markahæst og stoðsendingahæst í deildinni. Samt vill maður einhvern veginn fá meira frá Öglu Maríu. Það segir mikið um hvað það býr mikið í henni.
Katie Cousins.

Katie Cousins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varamenn:
Aldís Guðlaugsdóttir - FH
Arna Eiríksdóttir - FH
Hulda Ósk Jónsdóttir - Þór/KA
Shaina Ashouri - FH
Katla Tryggvadóttir - Þróttur R.
Murielle Tiernan - Tindastóll
Birta Georgsdóttir - Breiðablik

Sjá einnig:
Lið ársins 2022
Agla María Albertsdóttir.

Agla María Albertsdóttir.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Sandra María Jessen.

Sandra María Jessen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.