Fotbolti.net
10.11.26 - 16:37
Kári Snorrason

Kompany mættur aftur til starfa

Hneig niður á æfingasvæði Bayern fyrir tæpum þremur vikum.

Hneig niður á æfingasvæði Bayern fyrir tæpum þremur vikum.

Canon

Mynd: EPA

Vincent Kompany er mættur aftur til starfa hjá Bayern Munchen eftir að hafa fallið í yfirlið á æfingasvæði Bayern Munchen fyrir tæpum þremur vikum.

Kompany var með veirusýkingu og var síðar greindur með heilahimnubólgu og er það talið hafa ollið því að hann hneig niður.
Kompany hneig niður á æfingasvæði Bayern
TENGT EFNI

Kompany hneig niður á æfingasvæði Bayern

„Vincent Kompany er á batavegi og hefur verið á æfingasvæði liðsins frá byrjun vikunnar,“ segir í tilkynningu frá Bayern. Engin æfing hefur þó farið fram þar sem flestir leikmenn liðsins eru í landsliðsverkefnum.

Englendingurinn Aaron Danks hefur stýrt liðinu í fjarveru Kompany. Undir hans stjórn hefur Bayern unnið fjóra leiki og gert eitt jafntefli.

Næsti leikur Bayern er gegn Ísaki Bergmann og félögum í Köln 20. nóvember, að landsleikjahléinu loknu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.