10.11.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Orri um Andra Lucas: Alltaf að senda skilaboð á hann

Mynd: Instagram/orrioskarsson

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

Mynd: Instagram/orrioskarsson

Orri Steinn Óskarsson er spenntur fyrir landsleikjahlénu þar sem Ísland spilar við Búlgaríu og Lúxemborg í Þjóðadeildinni.

TENGT EFNI
Orri Steinn: Er að spila minn besta fótbolta á ferlinum
Orri Steinn er fyrirliði íslenska landsliðsins og gaf viðtal við Fótbolta.net á La Finca æfingasvæðinu á Spáni. Það var ekki langt fyrir Orra að fara þar sem hann er búsettur í landinu.
Hann nýtur lífsins á Spáni með Real Sociedad, sem er staðsett í Baskalandi og spilar heimaleiki sína í San Sebastián. Hann segist finna stundum fyrir gagnrýni en að hún hafi ekki áhrif á sig. Orri veit fullvel að allir framherjar klúðra færum, nema kannski Andri Lucas eins og hann bendir skemmtilega á.
„Ég skil það þegar ég er gagnrýndur en það hefur engin áhrif á mig. Ég veit sjálfur að framherjar klúðra fullt af færum, nema Andri Lucas kannski," sagði Orri og hló.
„Ég horfði alltaf mikið á Erling Haaland, róbotinn sem hann er, og það hefur ekkert áhrif á hann. Að geta tekið það með sér sem lærdóm að jafnvel þótt þú skorir, þú mátt vera glaður en það má ekki hafa áhrif á næsta færi heldur. Þú verður að láta eins og blaðið sé autt, sama hvort þú klúðrir eða skorir þá kemur annað færi."
Búast má við að Orri verði á sínum stað í byrjunarliði Íslands í hlénu með Andra Lucas Guðjohnsen sér við hlið, enda hefur Andri verið í miklu stuði með Blackburn Rovers í Championship deildinni. Hann er með 7 mörk í 7 leikjum frá síðasta landsleikjahléi.
„Ég er alltaf að senda á hann, mér líður eins og ég sé að senda á hann í hverri viku eða bara á hverjum degi. Hann er frábær framherji og það er geggjað að spila með honum í landsliðinu. Við höfum átt marga góða leiki saman og manni líður bara eins og maður sé að horfa á bróður sinn slá í gegn og hann á þetta skilið.
„Hann er búinn að leggja mjög mikið á sig, hann æfir eins og skepna og er búinn að taka skref upp utan vallar líka. Hann er að blómstra, ég er stoltur af honum og vona að hann haldi svona áfram. Þetta er gott fyrir liðið."
Orri hrósaði líka Brynjólfi Andersen Willumssyni sem hefur verið að gera frábæra hluti í Hollandi frá síðasta landsleikjahlé, með 5 mörk og stoðsendingu í 5 leikjum í efstu deild. Þar að auki hrósaði hann Mikael Agli Ellertssyni sem hefur verið að skora með Genoa og Ísaki Bergmanni Jóhannessyni sem hefur verið að gera slíkt hið sama með Köln.
„Binni í Hollandi er sjóðandi heitur, Mikael byrjaður að skora og Ísak að skora. Ég veit ekki, eigum við ekki að nefna alla bara? Það er auðvitað bara geggjað að leikmenn séu að setja mark sitt í stórum deildum, þetta er bara jákvætt fyrir liðið og íslenskan fótbolta yfir höfuð."