09.11.26 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Orri um orðrómana: Ekki að flýta mér burt frá Spáni

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Orri Steinn Óskarsson fór um víðan völl í viðtali við Fótbolta.net á La Finca æfingasvæðinu þar sem íslenski hópurinn hitar upp fyrir næsta landsliðsverkefni.

TENGT EFNI
Orri tjáir sig um agamálið: Eitthvað sem hópurinn átti að taka á saman
Orri Steinn hefur verið að gera flotta hluti með Real Sociedad í spænska boltanum og segist ekkert vera að hugsa um ensku úrvalsdeildina þrátt fyrir að hafa alist upp sem mikill stuðningsmaður Manchester United. Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson væri til í að sjá Orra í United og fjölmiðlar á Englandi hafa til að mynda orðað Orra við Everton.
Viðtalið má sjá í heild hér fyrir neðan, en Orri byrjar að tala um Real Sociedad eftir rétt rúmlega 5 mínútur og 30 sekúndur af myndskeiðinu.
„Ég er auðvitað United maður en ég er mjög, mjög ánægður hjá Real Sociedad eins og staðan er núna. Ég er ekki að líta í kringum mig og einbeiti mér bara að því sem við erum að gera. Það gengur vel hjá okkur og við eigum fullt af leikjum framundan, fjórar keppnir og nóg að gera," sagði Orri.
„Maður les auðvitað fjölmiðla, en ég hef verið að lesa fréttir um sjálfan mig síðan ég var 16 ára og hef lært að taka ekki mark á því. Auðvitað er skemmtilegt þegar er verið að orða mann við flott lið, en eins og ég segi þá er ég mjög ánægður með Real Sociedad og hugur minn fer aldrei mikið lengra en það."
Orri segist vera opinn fyrir því að spila á Englandi en talar ekki um það sem sérstakan draum.
„Ég veit það ekki, kannski í framtíðinni, ég er ekki allavega ekki að flýta mér burt frá Spáni. Mér líður mjög vel, fjölskyldunni líður mjög vel og mér finnst spænski boltinn búinn að mótast mjög vel á mig. Það er mikill munur á spænsku og ensku deildinni en það er auðvitað eitthvað sem heillar. England heillar örugglega alla leikmenn í heiminum og ég er ekkert ólíkur þeim, en mér líður mjög vel á Spáni og finnst spænski boltinn geggjaður. Ég horfi örugglega meira á spænska en enska núna."