10.11.26 - 09:32
Kári Snorrason
Wenger íhugar að fara í framboð gegn Infantino

Wenger er 77 ára gamall.

Mynd: EPA

Sá umdeildi.

Mynd: EPA

Wenger er 77 ára gamall.

Mynd: EPA
Arsene Wenger, fyrrverandi stjóri Arsenal, veltir fyrir sér framboði gegn Gianni Infantino í forsetakjöri FIFA.
Framboðsfrestur rennur út miðvikudaginn 18. nóvember en kosningarnar sjálfar verða í mars á næsta ári.
BBC greinir frá en Wenger myndi fá stuðning frá UEFA í kjörinu þar sem sambandið hefur leitað af manni til að knésetja Infantino.

TENGT EFNI
Leita að manni til að knésetja Infantino
Wenger er 77 ára gamall en hann hefur undanfarin ár starfað sem yfirmaður þróunarmála hjá FIFA.
Ramon Vega, fyrrum leikmaður Tottenham, og Kozo Tashima, heiðursforseti japanska fótboltasambandsins, hafa tilkynnt um framboð sitt í forsetakjörinu.
Infantino hefur fengið gagnrýni úr öllum áttum eftir áætlanir um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA. Tillagan mætti gríðarlegri andstöðu um allan heim og var dregin til baka.