Fotbolti.net
15.10.26 - 13:00
Elvar Geir Magnússon

Leita að manni til að knésetja Infantino

Infantino og Ceferin.

Infantino og Ceferin.

Canon

Mynd: EPA

Guardian segir leiðtoga evrópska fótboltans vera sannfærðir um að þeir muni finna öflugan frambjóðanda til að fara gegn Gianni Infantino í forsetakosningum FIFA á næsta ári.

Miðillinn hefur eftir ónefndum formanni fótboltasambands í Evrópu að menn séu bjartsýnir á að hægt verði að koma Infantino frá völdum á FIFA þingi í mars.
Ceferin um Infantino: Keisarinn er nakinn
TENGT EFNI

Ceferin um Infantino: Keisarinn er nakinn

UEFA, Concacaf og asíska sambandið eru mótfallin endurkjöri Infantino en samböndin hafa ekki náð að sameinast um mótframbjóðanda. Framboðsfrestur rennur út 18. nóvember.

Forsetar þessara þriggja álfusambanda hafa útilokað að fara sjálfir í framboð. Arsene Wenger var orðaður við framboð en þeim sögusögnum hefur verið hafnað.

Luís Figo, fyrrum landsliðsmaður Portúgals, hefur verið nefndur en einnig er hann talinn hugsanlegur forseti UEFA þegar síðasta kjörtímabili Aleksander Ceferin lýkur árið 2031.

Infantino hefur fengið gagnrýni úr öllum áttum eftir áætlanir um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA. Tillagan mætti gríðarlegri andstöðu um allan heim og var dregin til baka.
Leita að manni til að knésetja Infantino
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.