Fotbolti.net
10.12.21 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hörður Björgvin spáir í 16. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

Hörður Björgvin á landsliðsæfingu í mars

Hörður Björgvin á landsliðsæfingu í mars

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Húsasmiðjan
Sextánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst í kvöld, föstudagskvöld, á viðureign Brentford og Watford.

Umferðin heldur áfram á laugardag og lýkur svo á sunnudag.

Hörður Björgvin Magnússon, landsliðsmaður og leikmaður CSKA í Moskvu, er spámaður umferðarinnar. Hörður er að snúa til baka eftir hásinaslit.

Sveindís Jane Jónsdóttir spáði í leiki síðustu helgar og var með sex rétta, getspakasti spámaðurinn til þessa.

Svona spáir Hörður leikjum helgarinnar:
Brentford 2-2 Watford
Ég er alveg lúmskt hrifinn af því sem er í gangi hjá Brentford. Allt byggist á xG hugmyndafræðinni. Þeir verða kóngar í tölfræðinni en fá því miður bara stig í þessum leik gegn óvenju vel gíruðum Watfordmönnum.

Man City 2-1 Wolves
Fannst eiginlega hundleiðinlegt að fylgjast með Wolves í síðasta leik og gæti verið svipað í þessari viðureign. Ef þeir fá mark á sig snemma þá gæti þetta verið markaleikur en held mig bara við 2-1.

Arsenal 2-0 Southampton
Markvarðarugl í gangi hjá Southampton. Aubameyang skorar loksins og Nallarar vinna þetta svona nokkuð þægilega.

Chelsea 3-1 Leeds
Evrópumeistarnir koma sér aftur á skrið eftir smá blunder í síðustu leikjum. Gætu lent óvænt undir en vinna þennan leik alltaf. Bielsaball trompar ekki þetta Gegenpress-hybrid.

Liverpool 4-2 Aston Villa
Gerrard mætir aftur á Anfield í næs stemningu en fer stigalaus til Birmingham. Sé ekki Villa stöðva þessa pressuvél. Easy að segja að Salah skori eitt og leggi upp. Ætla að gerast frakkur og segja að Origi skori þriðja leikinn í röð.

Norwich 1-3 Man Utd
Vel hvíldir þarna í United. Það er einhver góður fílingur yfir þessu hjá Rangnick. Fá alltaf á sig eitt mark en skora að minnsta kosti þrjú í smettið á Norwich. Rangnick is at the wheel og allt það.

Brighton 1-1 Tottenham
Þessi leikur fer ekki fram um helgina en þegar hann mun spilast þá má bæta einum rétt við síðar meir. Klassískt 1-1 algjörlega óháð því hver spilar og hvenær.

Burnley 1-2 West Ham
Það er eiginlega erfiðast að spá fyrir um þennan leik. Ekkert grín að fara á Turf Moor en gott challenge fyrir minn mann Moyes. Langar að henda í lúmskt mark frá Vlasic, þetta er gullmoli sem mun blómstra.

Leicester 2-0 Newcastle
Það má eiginlega senda þetta Newcastle lið niður sem fyrst. Jamie Vardy og Maddison hjálpa til við að gera það að veruleika ef þeir smitast ekki óvænt af veirunni skæðu. Amanda Staveley og einhver úr þessum ríkissjóði Sádana verða svaka peppuð á leiknum og búast við einhverju kraftaverki sem gerist ekki.

Crystal Palace 1-2 Everton
Heyrðuð það fyrst hér að Benítez er kominn í gang. Mínir menn vinna annan leikinn í röð og þessi spá er aðeins byggð á tilfinningum ekki einhverri tölfræði. Þannig möguleiki að þessi leikur fari á allt annan veg.

Fyrri spámenn:
Sveindís Jane - 6 réttir
Aron Þrándar - 5 réttir
Siffi G - 5 réttir
Davíð Snær - 5 réttir
Benni Gumm - 5 réttir
Mist Edvards - 5 réttir
Karitas - 5 réttir
Jeppkall - 4 réttir
Ísak Bergman - 4 réttir
Albert Brynjar - 4 réttir
DigiticalCuz - 4 réttir
Sammi - 4 réttir
Elías Már - 3 réttir
Orri Steinn - 3 réttir
Davíð Atla - 2 réttir
Ekkert gengið hjá Auba að undanförnu

Ekkert gengið hjá Auba að undanförnu

Canon

Mynd: EPA

Vardy og Maddison sjá um Newcastle ef þeir smitast ekki

Vardy og Maddison sjá um Newcastle ef þeir smitast ekki

Canon

Mynd: Getty Images

Vlasic kom til West Ham frá CSKA.

Vlasic kom til West Ham frá CSKA.

Canon

Mynd: Getty Images

Benítez er kominn í gang

Benítez er kominn í gang

Canon

Mynd: EPA

<b>Fantabrögð</B> - Þú sagðir ekki Ólsen!

Enski boltinn - Lundúnarþema og baráttan um fimmta sætið

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal38+4485
2Manchester City38+4278
3Manchester Utd38+1971
4Aston Villa38+765
5Liverpool38+1060
6Bournemouth38+457
7Sunderland38-654
8Brighton38+653
9Brentford38+353
10Chelsea38+652
11Fulham38-452
12Newcastle38-249
13Everton38-349
14Leeds38-747
15Crystal Palace38-1045
16Nott. Forest38-344
17Tottenham38-941
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.