Fotbolti.net
11.06.25 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hópur Íslands fyrir EM kynntur á föstudag

Sveindís Jane verður án vafa í hópnum.

Sveindís Jane verður án vafa í hópnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Icelandair
Í hádeginu á föstudaginn verður landsliðshópur Íslands fyrir Evrópumótið tilkynntur.

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari Íslands, mun kynna 23 manna hópinn og svara spurningum fjölmiðla
Gætu óvænt nöfn bankað á dyrnar fyrir EM?
TENGT EFNI

Gætu óvænt nöfn bankað á dyrnar fyrir EM?

Það eru einhverjir leikmenn tæpir vegna meiðsla en Selma Sól Magnúsdóttir hefur misst af síðustu verkefnum. Þá þurftu Amanda Andradóttir, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og Emilia Kiær Ásgeirsdóttir að draga sig úr síðasta hóp út af meiðslum.

Það verður spennandi að sjá hvernig hópurinn verður þegar landsliðsþjálfarinn kynnir hann á föstudag. Næsti leikur er svo æfingaleikur gegn Serbíu 27. júní áður en liðið heldur til Sviss á EM.

Leikir Íslands á EM:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.