Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur sigraði ÍA 1-2 í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla á ELKEM vellinum. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Óskar Borgþórs, leikmann Víkings, eftir leikinn.
„Tilfingin er bara mjög góð, það er geggjað að vera komnir í undanúrslit í bikarnum eftir sigur hér á Skaganum. Það eru ekkert öll lið sem koma hér upp á Skaga og vinna þannig að þetta er geggjuð tilfinning.''
Víkingar fóru aðeins hægt af stað í leiknum og voru að klikka á einföldum sendingum en náðu svo fljótt stjórn á leiknum og héldu henni nokkuð vel.
„Við þurftum aðeins að koma okkur í gang, það tók okkur svona 15 mínútur, svo vorum við komnir í gang og vorum byrjaðir að hreifa þá og spila okkar bolta.''
Óskar skoraði fyrra mark Víkings í leiknum en var það hans 9. mark á tímabilinu. Hvað er Óskar að gera svona vel?
„Ég var lélegur í fyrri hálfleik og bara í þessum leik en ég nýtti bara þetta moment sem ég fékk og það er mikilvægt að gera það. Þegar maður er í svona sterku Víkingsliði, sterkir menn á bekknum, þá bara verður maður að nýtafærin sem maður fær og ég gerði það í dag og það hjálpaði liðinu.''
Víkingur fær Breiðablik á útivelli í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Hvernig líst Óskari á það?
„Það var draumadrátturinn minn allavega og hjá okkur strákunum þannig við erum bara mjög sáttir með það.''






