Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
Lengjudeild karla
Þróttur R.
19:15 0
0
HK
Mjólkurbikar karla
Ægir
45' 0
2
Breiðablik
ÍA
0
0
Víkingur R.
12.06.2026  -  20:15
ELKEM völlurinn
Mjólkurbikar karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Skemmtilegar fréttir frá fótboltaparinu Karl Friðleifur, leikmaður Víkings, á von á barni en hann greindi frá því í gær og óskum við hjá Fótbolta.net honum og frú innilega til hamingju með það!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fallegt framtak Skagamanna Fyrir leik kvöldsins verður afhjúpaður minningarsteinn til heiðurs Sigursteini Gíslasyni. Fallegt hjá Skagamönnum en Sigursteinn lék á sínum tima 335 leiki og skoraði í þeim 40 mörk.
Fyrir leik
Markús Páll vill fá fólkið á völlinn Markaskorarinn var tekinn í viðtal við Fótbolta.net fyrir leikinn og hafði hann mikið að segja.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Seinast höfðu Víkingar betur Liðin mættust í Bestu deildinni í Víkinni í apríl en þá flengdu Víkingar Skagamenn með 4-0 sigri. Þar skoraði Elías Már tvö mörk en ásamt því voru það Valdimar Þór og Viktor Örlygur sem komust á blað.

Ná Skagamenn að hefna fyrir þetta slæma tap og halda bikarævintýri sínu áfram eða halda Víkingar áfram að vinna allt og alla?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins Gunnar Oddur Hafliðason er aðaldómari leiksins, aðstoðardómararnir tveir eru Ragnar Þór Bender og Kristján Már Ólafs og fjórði dómari er Pétur Guðmundsson. Viðar Helgason er dómaraeftirlitsmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Mjólkurbikarinn heldur áfram! Verið velkomin í þráðbeina textalýsingu fyrir leik ÍA og Víkings í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla sem fer fram á ELKEM vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dregið verður í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir leikinn. Undanúrslitaleikirnir fara fram 24. og 25. júní.
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: