Fotbolti.net
12.11.26 - 10:40
Kári Snorrason

Carrick rekinn frá United (Staðfest)

Rekinn.

Rekinn.

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick hefur verið rekinn sem þjálfari Manchester United. Brottreksturinn hefur legið í loftinu síðustu daga og hefur félagið staðfest tíðindin.

Mauricio Pochettino, þjálfari bandaríska landsliðsins, er sagður vera kominn með munnlegt samkomulag um að taka við liðinu.
Munnlegt samkomulag við Pochettino í höfn
TENGT EFNI

Munnlegt samkomulag við Pochettino í höfn

Carrick var ráðinn sem bráðabirgðaþjálfari liðsins í upphafi árs og náði góðum árangri. Hann endaði með liðið í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og var verðlaunaður með stjórasætinu til frambúðar.

Gengi liðsins á yfirstandandi tímabili hefur verið langt undir væntingum og situr United nú í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið hefur aðeins unnið þrjá sigra í fimmtán leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.

Félagið hefur hlotið mikla gagnrýni hvernig það hefur staðið að brottrekstrinum en Carrick hefur verið lýst sem gangandi líki síðustu daga.

Hann stýrði æfingu á Carrington í gær á sama tíma og Mauricio Pochettino var sagður vera kominn með munnlegt samkomulag við félagið.

Frétt uppfærð 10:40:
Manchester United hefur staðfest brottreksturinn.


Kominn með munnlegt samkomulag við United.

Kominn með munnlegt samkomulag við United.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.