12.11.26 - 15:02
Andri Stefánsson
Einkunnir U21 - Grátlegt jafntefli

Júlíus var sterkur í hjarta varnarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel klúðraði víti.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mikil snjókoma.

U21 landslið Íslands tók á móti Grikklandi í umspili EM klukkan 13:00 í dag.
Leikar enduðu með virkilega svekkjandi jafntefli þar sem Grikkland jafnaði eftir 90 mínútur. Hilmir Rafn kom Íslandi yfir eftir 88 mínútur.
Seinni leikur liðanna fer fram í Grikklandi.
Hér fyrir neðan má sjá einkunnargjöf Fótbolta.net úr leiknum.

Lestu um leikinn: Ísland U21 1 - 1 Grikkland U21
Lúkas Petersson - 7
Varði tvisvar sinnum virkilega vel í tvígang eftir um það bil 35 mínútna leik. Góð frammistaða.
Daníel Freyr Kristjánsson - 7
Daníel var flottur í vinstri bakverðinum. Hann var góður varnarlega. Fínasta frammistaða.
Davíð Helgi Aronsson - 7
Davíð Helgi var góður í miðverðinum. Hann steig varla feilspor í leiknum.
Júlíus Mar Júlíusson – 7
Var að kljást við fínan framherja og stóð uppi sem sigurvegari í þeirri baráttu. Mjög sterk frammistaða í hjarta varnarinnar.
Hlynur Þórhallsson - 7
Skilaði inn góðu dagsverki í hægri bakverðinum. Ógnaði einnig fram á við með hættulegum hlaupum.
Freyr Sigurðsson – 6
Freyr átti nokkrar góðar sendingar í gegn. Fín frammistaða hjá honum.
Tómas Orri Róbertsson – 6
Lét ekki mikið til sín taka sóknarlega en var virkilega duglegur til baka og vann nokkrum sinnum boltann.
Galdur Guðmundsson – 7
Galdur var hættulegasti maður Íslands fram á við ásamt Ágústi Orra. Hann var óheppinn þegar hann fór á milli tveggja mann en negldi boltanum í slána.
Ágúst Orri Þorsteinsson – 8
Ágúst var mjög líflegur á kantinum. Hann vann auðvitað vítaspyrnuna en Daníel brenndi af. Hann lagði upp markið á Hilmi. Sterkt að fá Ágúst inn í þetta verkefni.
Daníel Tristan Guðjohnsen – 5
Daníel var mikilvægur í uppspili Íslands en vítaspyrnan var gríðarlega slök hjá honum. Skotið var laust og í virkilega þægilegri hæð fyrir markmann Grikklands.
Viktor Bjarki Daðason – 6
Viktor hélt vel í boltann og var mikilvægur hlekkur í uppspili Íslands líkt og Daníel. Hann náði hins vegar ekki að skapa mikla hættu á síðasta þriðjungi.
Varamenn:
Benoný Breki Andrésson - 6
Hilmir Rafn Mikaelsson - 8
Amin Cosic - 6