12.11.26 - 17:47
Brynjar Ingi Erluson
Ekki ljóst hvort Owono snúi aftur á völlinn

Jesus Owono

Mynd: EPA

Jesus de Miguel lést eftir þungt högg sem hann fékk í leik gegn Andorra

Mynd: Tenerife

Jesus Owono

Mynd: EPA
Carles Manso, þjálfari Andorra FC, segir að markvörðurinn Jesus Owono hafi ekki enn tekið ákvörðun um framtíð sína í fótboltanum eftir að hafa orðið framherjanum Jesus de Miguel, sem er á mála hjá Tenerife, að bana á dögunum.

TENGT EFNI
Owono gefur ekki kost á sér í landsliðið eftir andlát De Miguel
Owono hljóp gáleysislega út úr markinu til að koma í veg fyrir að De Miguel kæmist í dauðafæri, en í úthlaupinu rakst hné hans í bringu framherjans. De Miguel fór í kjölfarið í hjartastopp og lést síðar á sjúkrahúsi á Spáni.
Owono hefur ekkert æft með Andorra síðan atvikið átti sér stað og gaf heldur ekki kost á sér í landslið Miðbaugs-Gíneu.
Markvörðurinn íhugar nú alvarlega að leggja hanskana á hilluna, enda hefur atvikið lagst afar þungt á hann. Hann hefur eytt tímanum með fjölskyldu sinni sem hefur stutt hann í gegnum þennan erfiða tíma og hugað að andlegri líðan hans.
„Það eina sem við getum gert er að styðja hann á allan mögulegan hátt og vera til staðar fyrir hann. Við munum gefa honum allt það svigrúm sem hann þarf til að taka ákvörðun um framtíð sína, hvort hann vilji snúa aftur, hvenær það yrði eða hvort hann vilji yfirhöfuð halda áfram.“
„Þegar honum finnst rétti tíminn vera kominn og hann er tilbúinn að taka þessa ákvörðun, þá mun hann gera það,“ sagði Manso við fjölmiðla.
Andorra snýr aftur á völlinn á laugardag þegar liðið mætir Almeria í spænsku B-deildinni.