Fotbolti.net
12.11.26 - 23:41
Brynjar Ingi Erluson

KA tilkynnir nýjan þjálfara á morgun - Túfa að snúa aftur?

Í stiklunni sem KA birti eru vísbendingar um það að Túfa sé að snúa aftur

Í stiklunni sem KA birti eru vísbendingar um það að Túfa sé að snúa aftur

Canon

Mynd: Túfa

KA mun tilkynna nýjan þjálfara meistaraflokks karla klukkan 12:00 á morgun, en félagið hefur birt stiklu sem virðist gefa vísbendingu um hver muni taka við liðinu.
Túfa er fyrsti kostur KA - „Erum að sjá hvort það gangi upp"
TENGT EFNI

Túfa er fyrsti kostur KA - „Erum að sjá hvort það gangi upp"

Hallgrímur Jónasson náði samkomulagi um starfslok hjá KA eftir að hafa fallið niður í Lengjudeildina með liðið.

Þjálfaramál KA hafa verið mikið til umræðu síðustu vikur og hefur ekkert farið leynt með að Srdjan Tufegdzic (Túfa), fyrrum leikmaður og þjálfari liðsins, hafi verið efstur á óskalistanum.

Túfa stýrði KA þegar liðið tryggði sér sæti í efstu deild árið 2016, en síðan þá hefur hann komið víða við á þjálfaraferlinum.

Hér heima hefur hann einnig stýrt Grindavík og Val, auk þess að hafa getið sér gott orð í Svíþjóð þar sem hann hefur þjálfað Östers, Skövde og nú síðast Värnamo.

„Við höfum tekið fund með tveimur þjálfurum, það er ekkert launungarmál að við höfum verið að ræða við Túfa. Við erum að sjá hvort það gangi upp, hann er með fjölskylduna úti í Svíþjóð. Þetta skýrist væntanlega á næstu dögum," sagði Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, um Túfa í viðtali við Fótbolta.net á dögunum.

Myndir þú segja að Túfa væri valkostur númer eitt eins og staðan er í dag?

„Já, Túfa er það hjá okkur. Við erum aðeins að bíða og sjá hvernig staðan hjá honum verður, gefum honum nokkra daga,“ sagði hann enn fremur.

Ekki nóg með það heldur virðist lagavalið í kynningarstiklu KA gefa sterklega til kynna að Túfa sé á leiðinni aftur norður. Þar hljómar lagið End of Beginning með Djo, en í textanum segir: „Þú getur tekið manninn úr borginni, en ekki borgina úr manninum.“

Allt mun skýrast í hádeginu á morgun, en allir eru velkomnir í KA-heimilið þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.