12.11.26 - 15:00
Kári Snorrason
U21: Hræðilegt víti og sjálfsmark í svekkjandi jafntefli

Völlurinn var snævi þakinn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Byrjunarliðið.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Tristan brenndi af vítaspyrnu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Völlurinn var snævi þakinn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland U21 1 - 1 Grikkland U21
0-0 Daníel Tristan Guðjohnsen ('62 , misnotað víti)
1-0 Hilmir Rafn Mikaelsson ('88 )
1-1 Hilmir Rafn Mikaelsson ('90 , sjálfsmark)
U21 landsliðið gerði 1-1 jafntefli á Grikklandi á Pepsí-vellinum í Laugardal rétt í þessu. Um er að ræða fyrri viðureign liðanna í umspili um sæti á EM í Albaníu og Serbíu næsta sumar.
Veðuraðstæður voru skrautlegar og gerði mikil snjókoma leikmönnum erfitt fyrir.

Lestu um leikinn: Ísland U21 1 - 1 Grikkland U21
Ísland var sterkara liðið allan leikinn og fékk Galdur Guðmundsson hættulegasta færi fyrri hálfleiks þegar hann prjónaði sig í gegnum tvo varnarmenn Grikkja og þrumaði boltanum í þverslána.
Vegna mikillar snjókomu þurfti að gera hlé á bæði fyrri og seinni hálfleik til að skafa snjó af vallarlínum.
Ísland var áfram hættulegra liðið í seinni hálfleik og eftir um klukkutíma leik fékk íslenska liðið vítaspyrnu eftir að brotið var á Ágústi Orra Þorsteinssyni í teig Grikkja.
Daníel Tristan Guðjohnsen tók arfaslaka vítaspyrnu, en hann gekk rólega að boltanum og tók laust skot í markmannshæð sem Nikolaos Botis varði þægilega.
Tæpum tíu mínútum síðar fékk Davíð Helgi Aronsson gullið tækifæri til að koma Íslandi yfir er hann átti skalla af stuttu færi sem fór rétt framhjá.
Hilmir Rafn Mikaelsson kom inn á sem varamaður fyrir Daníel Tristan á 78. mínútu og tíu mínútum síðar stangaði hann boltann í netið eftir fyrirgjöf Ágústs Orra.
Allt leit út fyrir að íslenska liðið væri að fara með sanngjarnan sigur af hólmi en á þriðju mínútu í uppbótartíma varð Hilmir Rafn Mikaelsson fyrir því óláni að setja boltann í eigið net eftir fast leikatriði Grikklands. Sveiflukenndar mínútur hjá varamanninum.
Svekkjandi 1-1 jafntefli staðreynd. Síðari viðureign liðanna fer fram í Aþenu á mánudaginn.