Það er oft skemmtilegt umræðuefni að velta því fyrir sér hver verði næsti Íslendingur til að spila í ensku úrvalsdeildinni.
Elías Rafn Ólafsson landsliðsmarkvörður átti stórleik fyrir danska liðið Midtjylland í gær þegar það vann 1-0 útisigur gegn enska liðinu Nottingham Forest. Þetta var fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
„Elías Ólafsson þarf ekki að spila marga leiki í viðbót eins og þennan áður en hann kemst virkilega á radarinn hjá félögum í ensku úrvalsdeildinni," skrifaði blaðamaðurinn Oliver Okström á X.
Þetta er í annað sinn á tímabilinu sem liðin mættust en Midtjylland vann 3-2 á City Ground í deildarkeppninni í október.

Elias Olafsson skal ikke spille mange flere af sådan nogle kampe, inden han virkelig kommer ind på radaren hos klubber i Premier League #nfofcm #midtjylland
— Oliver Okstrøm (@OliverOkstrom) March 12, 2026
Athugasemdir