13.09.26 - 20:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Patrik spilaði sinn fyrsta leik í tæp tvö ár

Mynd: Kortrijk

Mynd: Kortrijk
Patrik Sigurður Gunnarsson spilaði sinn fyrsta keppnisleik í dag í tæp tvö ár þegar hann stóð í marki Kortrijk í 3-0 tapi gegn RAAL La Louviere í belgísku deildinni. Hann spilaði einn leik á undirbúningstímabilinu.
Hann sagði frá því í júlí að hann hafi greinst með sjaldgæfan taugasjúkdóm sem hafði mikil áhrif á hreyfigetuna og hefur haldið honum frá vellinum í tæp tvö ár. Virkilega gaman að sjá hann snúa aftur eftir þessa erfiðu tíma. Kortrijk er á botninum án stiga eftir sex umferðir.

TENGT EFNI
Patrik: Þakklátur fyrir að vera kominn til baka
Daníel Leó Grétarsson var í byrjunarliðinu og Mikael Neville Anderson kom inn á þegar AGF tapaði 2-0 gegn Nordsjælland í dönsku deildinni. AGF er í miklum vandræðum og er með fjögur stig eftir átta umferðir í næst neðsta sæti.
Óttar Magnús Karlsson var í byrjunarliði Renate þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Lumezzane í ítölsku C-deildinni. Renate er með eitt stig eftir fjórar umferðir.
Alex Freyr Elísson var í byrjunarliði NSÍ Runavík sem gerði 1-1 jafntefli gegn Víking Götu í færeysku deildinni. NSÍ er á toppnum með 45 stig eftir 22 umferðir, stigi á undan KÍ Klaksvik.
Lúkas Petersson var í markinu hjá varaliði Hoffenheim í 2-2 jafntefli gegn Fortuna Köln í C-deildinni í Þýskalandi. Hoffenheim er í 9. sæti með 7 stig eftir fimm umferðir. Þá var Arnór Gauti Jónsson ónotaður varamaður í 1-0 tapi Slaven Belupo gegn Hajduk Split í króatísku deildinni. Liðið er með sex stig eftir sjö umferðir í 8. sæti.