Fotbolti.net
13.11.26 - 18:52
Elvar Geir Magnússon
- skrifar frá Plovdiv

Sex leikmenn Íslands á hættusvæði

Daníel Leó Grétarsson er á hættusvæði.

Daníel Leó Grétarsson er á hættusvæði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Sex leikmenn í íslenska landsliðshópnum eiga á hættu að vera í banni gegn Lúxemborg á mánudag vegna uppsafnaðra áminninga.

Fjórir af þeim eru í byrjunarliðinu gegn Búlgaríu í kvöld og verða í banni á mánudag fái þeir gult í Plovdiv.

Það eru markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson, varnarmaðurinn Daníel Leó Grétarsson og miðjumennirnir Ísak Bergmann Jóhannesson og Stefán Teitur Þórðarson.
<b>Byrjunarlið Íslands -</b> Kristall byrjar og Gylfi á bekknum
TENGT EFNI

Byrjunarlið Íslands - Kristall byrjar og Gylfi á bekknum

Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 0 Ísland
Ísak Snær Þorvaldsson og Hörður Björgvin Magnússon sem byrja meðal varamanna eru einnig á hættusvæði.

Ísland er ósigrað á toppi riðilsins og gæti tryggt sér sigur í riðlinum í kvöld en Lúxemborg og Eistland mætast á sama tíma og strákarnir okkar leika gegn Búlgörum. Efsta lið riðilsins mun tryggja sér sæti í B-deildinni en liðið sem endar í öðru sæti mun fara í umspil um að komast upp.
Sex leikmenn Íslands á hættusvæði
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.