Fotbolti.net
13.11.26 - 22:24
Elvar Geir Magnússon

Andri Lucas: Ætli það sé ekki bara pabbi næst?

Auglýsing
Andri Lucas: Ætli það sé ekki bara pabbi næst?
Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
Andri Lucas Guðjohnsen fékk að eiga boltann þegar Ísland vann 5-0 útisigur gegn Búlgaríu í kvöld. Hann skoraði þrennu og var kampakátur eftir leik.
Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 5 Ísland
Hvernig gerir þú þennan leik upp?

„Bara eiginlega fullkominn. Bara mjög góður leikur. Þeir áttu ekki sinn besta leik ef maður er alveg hreinskilinn. En við vorum bara gjörsamlega on it í dag. Vorum góðar á boltanum, vorum geggjaðar í hápressunni. Þeir komust eiginlega varla í einhver svaka færi."

Hvernig er að skora þrennu fyrir Ísland?

„Það er bara ótrúlega góð tilfinning og bara gaman líka að gera hérna í þessum hópi. Það er bara góð orka í hópnum og það er skemmtilegt að spila fyrir Ísland þessa dagana."

Af hverju tókst þú vítið?

„Davíð Snorri kom til mín bara hérna í gær eftir æfingu og lét mig vita að ég væri í vítaspyrnunum."

Með þrennuna ertu kominn upp fyrir afa þinn á markaskoraralistanum. Hvernig er að, hvernig er að heyra það?

„Það er bara geggjað. Hérna, þá er ég allavegana búinn að tikka afa af listanum. Ætli það sé ekki bara pabbi næst?"

Viðtalið er í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.