13.11.26 - 21:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá PlovdivEinkunnir Íslands - Geta einfaldlega ekki hætt að skora

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

Mynd: Fótbolti.net

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

Ísland mætti Búlgaríu í 5. umferð riðlakeppninnar í Þjóðadeildinni í kvöld. Liðin spiluðu á Hristo Botev leikvanginum í Plovdiv og endaði leikurinn með öruggum 0-5 útisigri Íslands.
Búlgarska liðið er ekki upp á marga fiska og er einkunnagjöfin svolítið eftir því, erfiðara var að fá mjög háa einkunn í kvöld. Baulað var á Búlgarana í lok leiks.

Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 5 Ísland
Hákon Rafn Valdimarsson - 7
Öruggur í markinu, hélt hreinu í fjórða leiknum í röð. Reyndi aðallega á hann í löppunum en sló eina fyrirgjöf í burtu og varði bæði skot Búlgara á markið.
Guðlaugur Victor Pálsson - 6,5
Traustur til baka, gaf reyndar eina hornspyrnu, en Búlgarar komust ekki framhjá honum og Gulli var fastur fyrir. Bauð upp á frekar lítið fram á við.
('9) Stefán Teitur Þórðarson - Spilaði ekki nóg til að fá einkunn
Virtist togna aftan í læri.
('71) Daníel Leó Grétarsson - 7
Öruggur í vörninni, las leikinn vel og þurfti að leysa hægri miðvörðinn eftir meiðsli Stefáns.
Logi Tómasson - 7
Átti stangarskot og svo sendinguna inn á Brynjólf í þriðja markinu. Gat verið mjög sóknarsinnaður í kvöld sem hentar honum vel.
('71) Ísak Bergmann Jóhannesson - 7
Stýrði spili Íslands og átti nokkrar góðar sendingar út á kantana. Hélt góðu jafnvægi á miðjunni og sýndi hversu mikinn leikskilning hann býr yfir.
Hákon Arnar Haraldsson - 8
Frábær stoðsending á Andra Lucasi í fjórða markinu eftir að hafa ekki gert mikið sóknarlega þangað til. Hákon var öflugur varnarlega Kveikti oft á pressunni og tók á sig gult spjald í seinni hálfleik. Átti stóran þátt í fimmta marki Íslands.
Mikael Egill Ellertsson - 7
Mjög góð fyrirgjöf á Loga í fyrri hálfleik og óheppinn að fá ekki stoðsendinguna þar. Komst ekki í mjög gott færi en missti jafnvægið þegar ýtt var í hann. Mikael að tengja vel með framherjum og miðjumönnum. Er orðinn fastamaður í byrjunarliðinu.
('29) Kristall Máni Ingason - 6,5
Var nokkuð líflegur fram að meiðslunum, vann nokkra bolta og átti sendinguna inn á Orra sem fékk svo vítaspyrnu. Virtist meiðast á hné. Þetta var fyrsti keppnisleikur Kristals sem byrjunarliðsmaður í landsliðinu.
Andri Lucas Guðjohnsen - 9
Skoraði af vítapunktinum af öryggi, bætti svo við öðru marki í seinni hálfleiknum með smekklegri vippu eftir sendingu Hákonar og fullkomnaði svo þrennuna á 79. mínútu. Andri er gjörsamlega óstöðvandi um þessar mundir, þrenna niðurstaðan í kvöld. Getur ekki hætt að skora, er nú kominn með 15 landsliðsmörk og jafnar Birki Bjarnason sem sjótti markahæsti landsliðsmaður sögunnar.
('46) Orri Steinn Óskarsson - 8
Fiskar víti og skorar, eins og Andri þá getur hann einfaldlega ekki hætt að skora. Nokkur góð móment þar sem Orri tengdi vel við liðsfélagana. Fyrirliðinn funheitur sem var tekinn af velli í hálfleik þar sem skortur var á skiptigluggum eftir meiðslin í fyrri hálfleik. Erfitt að biðja um meira á 45 mínútum.
Varamenn
('9) Hörður Björgvin Magnússon - 7,5
Kom óvænt snemma inn á og átti frábæra sendingu inn á Orra í marki tvö - alvöru löpp! Tók á sig gult spjald í fyrri hálfleiknum og verður í leikbanni á mánudag.
('29) Arnór Sigurðsson - 6,5
Var öflugri varnarlega framan af, mjög duglegur. Átti sendingu á Gylfa sem setti boltann í stöngina og var svo nálægt því að fá algjört dauðafæri eftir sendingu Mikaels en Búlgarar björguðu. Arnór fékk svo dauaðfæri í lok leiks til að skora en hitti ekki markið.
('46) Brynjólfur Andersen Willumsson - 7
Átti sendinguna í mjög svo klaufalegu sjálfsmarki Búlgara. Skoraði ekki sjálfur en fékk aðstoð frá andstæðingnum í dag. Átti svo sendingu ætlaða Hákoni sem hreinsuð var beint á Andra sem skoraði sitt þriðja mark.
('71) Aron Einar Gunnarsson - 6
Er nú einum landsleik frá því að jafna landsleikjamet Birkis Bjarnasonar. Reyndi lítið á hann.
(71) Gylfi Þór Sigurðsson - 6,5
Átti stangarskot eftir sendingu Arnórs, óheppinn að það endaði ekki í netinu. Óheppinn að fá ekki stoðsendingu svo þegar hann lagði boltann inn á Arnór í lok leiks.