Fotbolti.net
13.11.26 - 09:52
Elvar Geir Magnússon
- skrifar frá Plovdiv

Búlgarar leika með sorgarbönd í kvöld

Frá leik Íslands og Búlgaríu á Laugardalsvelli, leik sem Ísland vann 3-0.

Frá leik Íslands og Búlgaríu á Laugardalsvelli, leik sem Ísland vann 3-0.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Búlgaría og Ísland mætast í C-deild Þjóðadeildarinnar klukkan 19.45 í kvöld, 21:45 að staðartíma.

Mínútu þögn verður fyrir leikinn og leikmenn búlgarska liðsins spila með sorgarbönd.
Leikvangurinn fær 7,5 - Sorglega fáir áhorfendur
TENGT EFNI

Leikvangurinn fær 7,5 - Sorglega fáir áhorfendur

Tólf létust og 50 slösuðust í fjöldaárekstrum á hraðbraut í suðausturhluta Búlgaríu á þriðjudag. Slysin urðu í mikilli þoku nærri borginni Jambol. Lýst var yfir þjóðarsorg í kjölfarið.

Hristo Botev leikvangurinn í Plovdiv verður ansi tómlegur í kvöld. Hann tekur tæplega 19 þúsund áhorfendur en búlgarskur fótbolti er í djúpum dal og mætingin á heimaleiki búlgarska landsliðsins hefur verið sorglega lítil.

Búið er að selja um 1.000 miða en reiknað er með að heildarfjöldi áhorfenda verði um 3.000. Þar af eru 20-30 Íslendingar.

Ísland er ósigrað á toppi riðilsins og gæti tryggt sér sigur í riðlinum í kvöld en Lúxemborg og Eistland mætast á sama tíma og strákarnir okkar leika gegn Búlgörum. Efsta lið riðilsins mun tryggja sér sæti í B-deildinni en liðið sem endar í öðru sæti mun fara í umspil um að komast upp.
Ísland æfði á keppnisvellinum í gær.

Ísland æfði á keppnisvellinum í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Beint frá Búlgaríu - Skyldusigur gegn buguðum Búlgörum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.