12.11.26 - 14:34
Elvar Geir Magnússon
- skrifar frá PlovdivLeikvangurinn fær 7,5 - Sorglega fáir áhorfendur

Ísland að hefja æfingu í Plovdiv.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Allir leikmenn Íslands taka þátt í æfingunni.

Miðbærinn í Plovdiv.

Ísland leikur gegn Búlgaríu ytra annað kvöld og lokar svo riðlinum í C-deild Þjóðadeildarinnar með heimaleik við Lúxemborg á Laugardalsvelli næsta mánudag.
Í þessum skrifuðu orðum er íslenska landsliðið að æfa á keppnisvellinum í Plovdiv. Fótbolti.net fékk Arnar Laufdal samfélagsmiðlastjóra KSÍ og Val Pál Eiríksson íþróttafréttamann á Sýn til að gefa leikvangnum einkunn. Arnar gaf 7 og Valur 8, sem gefur meðaleinkunn upp á 7,5.
Hristo Botev leikvangurinn í Plovdiv verður ansi tómlegur á morgun. Hann tekur tæplega 19 þúsund áhorfendur en búlgarskur fótbolti er í djúpum dal og mætingin á heimaleiki búlgarska landsliðsins hefur verið sorglega lítil.
Á síðasta heimaleik búlgarska liðsins voru innan við þúsund áhorfendur og svipað verður væntanlega upp á teningnum á morgun. Starfsmenn búlgarska sambandsins vilja lítið gefa upp um gengi miðasölunnar.
Leikurinn verður klukkan 21:45 annað kvöld, á föstudagskvöldi, og líklegra að íbúar Plovdiv skelli sér frekar út á lífið en að skella sér á völlinn.

TENGT EFNI
Landsliðið mætt í eina elstu borg Evrópu
Allir með á æfingunni
Allir leikmenn íslenska hópsins voru með á æfingunni en Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari mun upplýsa betur um stöðuna á hópnum á eftir þegar fréttamannafundur fer fram.
Búlgarar voru arfadaprir á Laugardalsvelli í síðasta glugga, þar sem Ísland vann 3-0. En þeir sýndu mun betri leik gegn Lúxemborg. Landslið þjóðarinnar er í mikilli lægð en bráðabirgðaþjálfairnn Atanas Ribarski, þjálfari U19-landsliðsins, er enn með stjórnartaumana og klárar þessa riðlakeppni.
Ísland er ósigrað á toppi riðilsins og gæti tryggt sér sigur í riðlinum á morgun en Lúxemborg og Eistland mætast á sama tíma og strákarnir okkar leika gegn Búlgörum. Eftsa lið riðilsins mun tryggja sér sæti í B-deildinni en liðið sem endar í öðru sæti mun fara í umspil um að komast upp.

Mynd: KSÍ