13.11.26 - 16:30
Ívan Guðjón Baldursson
De Bruyne: Planið var að stöðva Güler

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Kevin De Bruyne var í byrjunarliðinu og skoraði í naumum sigri Belgíu í Tyrklandi í Þjóðadeildinni í gærkvöldi, lokatölur 1-2.

TENGT EFNI
Þjóðadeildin: Stórbrotið aukaspyrnumark Güler dugði ekki Tyrkjum
Arda Güler gerði eina mark Tyrkja beint úr aukaspyrnu og var það stórbrotið mark. Güler er 21 árs gamall og þegar orðinn mjög mikilvægur hlekkur í ógnarsterku stórveldi Real Madrid.
De Bruyne svaraði spurningum að leikslokum og viðurkenndi að leikplanið hafi að stórum hluta snúist um að stöðva Guler.
„Arda Güler er leikmaður í hæsta gæðaflokki. Hann er einn af bestu leikmönnum í heimi og spilar fyrir eitt af bestu félagsliðum heims. Leikplanið okkar var skýrt; að reyna að stöðva hann," sagði De Bruyne.
Belgía situr í þriðja sæti riðilsins í Þjóðadeildinni með 9 stig eftir 5 umferðir. Á sunnudaginn taka Belgar á móti Ítalíu í spennandi slag sem gæti ráðið úrslitum um stöðuna í áhugaverðum riðli sem inniheldur einnig Frakkland.