Fotbolti.net
12.11.26 - 19:00
Brynjar Ingi Erluson

Þjóðadeildin: Stórbrotið aukaspyrnumark Güler dugði ekki Tyrkjum

Arda Güler skoraði geggjað mark

Arda Güler skoraði geggjað mark

Canon

Mynd: EPA

Belgíska landsliðið vann 2-1 sigur á Tyrklandi í A-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld.
Tyrkir mættu til leiks undir stjórn nýs þjálfara, en Sergen Yalcin tók við liðinu eftir að Vincenzo Montella var látinn taka pokann sinn.

Byrjunin gat varla verið betri hjá Tyrkjum, en á 20. mínútu skoraði Madrídingurinn Arda Güler stórkostlegt mark beint úr aukaspyrnu með því að smyrja boltann yfir varnarvegginn og í samskeytin.

Belgar voru hins vegar ekki lengi að svara og jafnaði Kevin de Bruyne metin aðeins sjö mínútum síðar. Þremur mínútum eftir það skoraði Charles De Ketelaere sigurmarkið og sneru Belgar þar með leiknum sér í vil á skömmum tíma.

Með sigrinum komust Belgar upp í annað sæti A-riðils með níu stig, aðeins einu stigi á eftir Frökkum. Tyrkir sitja hins vegar á botni riðilsins án stiga.

Í C-deildinni gerðu Armenía og Kýpur 1-1 jafntefli. Kýpur er í öðru sæti B-riðils með átta stig, en Armenar sitja í þriðja sæti með fimm stig.

Tyrkland 1 - 2 Belgía
1-0 Arda Guler ('20 )
1-1 Kevin De Bruyne ('27 )
1-2 Charles De Ketelaere ('30 )

Armenía 1 - 1 Kýpur
0-1 Iasonas Pikis ('9 )
1-1 Artur Gharibyan ('58 )


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.