Fotbolti.net
13.11.26 - 23:11
Elvar Geir Magnússon

Dóttir Daníels fór í stóra aðgerð - „Þurfti að fá að vera pabbi og eiginmaður“

Auglýsing
Daníel Leó Grétarsson.

Daníel Leó Grétarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Varnarmaðurinn Daníel Leó Grétarsson er lykilmaður í vörn íslenska landsliðsins og var öflugur í 5-0 útisigrinum gegn Búlgaríu í kvöld.

Fyrir landsleikjagluggann var óvissa með þátttöku hans þar sem hann fékk leyfi frá félagsliði sínu, AGF í Danmörku, af persónulegum ástæðum.

Hann greindi frá því í viðtali við Fótbolta.net í kvöld hver ástæðan væri.
Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 5 Ísland
„Það eru að koma ótal sögur um hvað hafi verið í gangi. Dóttir mín þurfti að fara í stóra aðgerð í Svíþjóð og ég þurfti bara að fá að vera pabbi og eiginmaður í þessa tíu daga sem ég var í burtu," segir Daníel en aðgerðin heppnaðist vel.

„Sem betur fer bara gekk það mjög vel, heilsan var góð og ég náði að komast í þetta verkefni. Þetta var bara nauðsynlegt, AGF sýndi mér skilning og ég er ánægður með að geta komið hingað og spilað fyrir landsliðið."

Það eru einhverjir hlutir sem eru ofar fótbolta í lífinu.

„Já, það eru það. Þetta var verkefni sem að við bara þurftum að takast á við og heilsan er góð í dag."

Viðtalið er í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.