Fotbolti.net
13.11.26 - 19:38
Brynjar Ingi Erluson

Gagnrýnir liðsval Arnars - „Það er dýrt og ég hef smá áhyggjur af því“

Gylfi er á bekknum

Gylfi er á bekknum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Gylfi Þór Sigurðsson er á bekknum gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í kvöld, en Arnar Gunnlaugsson, þjálfari landsliðsins, talaði um að vilja hafa menn sem eru „úberfit“ fyrir þennan leik.
Kári um agabrotin: Ætla ekki að fara setja mig á háan hest og var ekki barnanna bestur
TENGT EFNI

Kári um agabrotin: Ætla ekki að fara setja mig á háan hest og var ekki barnanna bestur

Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 0 Ísland
Arnar útskýrði val sitt á byrjunarliðinu og hefur hann ákveðið að vera með Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson á miðsvæðinu.

Gylfi hefur haldið sér í góðu formi síðan Íslandsmótinu lauk, en Arnar sagði í viðtali við Vísi að hann vildi „úberfit leikmenn“.

„Pælingin var aðallega að spila á „uber fit“ gaurunum sem eru búnir að spila mikið í Evrópu undanfarið og mér leið eins og það væri ekki kjörundirbúningur fyrir Gylfa núna að vera ekki búinn að spila síðustu fimm vikur.“

„Ég vildi treysta frekar strákunum sem hafa verið að spila og standa sig hrikalega vel með sínum félagsliðum. Svo snýst þessi leikur í dag ekki lengur bara um að vera „starter“ og varamaður heldur frekar „starter“ og leikmaður sem er tilbúinn að koma inn á og loka leikjum. Ég held að Gylfi væri fullkominn til að koma inn á, miðla sinni reynslu og loka leiknum fyrir okkur í kvöld,“
sagði Arnar við Vísi.

Kári Árnason var spurður út í þetta í settinu á SÝN, en hann skildi það þannig á Arnari að hann væri að tala um að Gylfi væri ekki í sömu leikæfingu og aðrir.

„Ég myndi segja það miðað við eins og ég þekki Gylfa þá hefur hann verið að æfa á fullu um leið og mótið var flautað af og gera sig kláran. Ég veit hann tók sér þrjá eða fjóra daga í smá pásu en svo aftur í gymmið og hlaupa.

„Ég held að hann eigi við leikæfingu. Hann ræður þessu þannig það er eins og það er,“ sagði Kári.

Aron Elís Þrándarson vildi sjá Gylfa byrja þennan leik og gagnrýndi þá Hákon Arnar og sagðist hafa pínu áhyggjur af því að hann væri að fara spila í sexuhlutverkinu.

„Mér finnst það. Ég er ósammála Arnari þarna og væri með Gylfa þarna inni.“

„Mér finnst Hákon í þessu sexuhlutverki á það til að teymast út úr stöðu og í útileikjum í þessum landsliðsbolta er það bara dýrt ef menn eru ekki að halda stöðu sinni og ég hef smá áhyggjur af því,“
sagði Aron Elís um Hákon.

Heimild: Vísir

Aron Elís hefur áhyggjur af Hákoni í sexunni

Aron Elís hefur áhyggjur af Hákoni í sexunni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.