Fotbolti.net
13.11.26 - 20:20
Brynjar Ingi Erluson

Heiðra Ronaldo þótt hann verði líklega ekki viðstaddur

Cristiano Ronaldo verður líklega ekki viðstaddur

Cristiano Ronaldo verður líklega ekki viðstaddur

Canon

Mynd: EPA

Portúgalska fótboltasambandið hefur fengið leyfi frá UEFA, fótboltasambandi Evrópu, til að heiðra Cristiano Ronaldo í leiknum gegn Danmörku í Þjóðadeildinni á morgun.
Ronaldo hættur með landsliðinu (Staðfest)
TENGT EFNI

Ronaldo hættur með landsliðinu (Staðfest)

Ronaldo lagði landsliðsskóna á hilluna á dögunum eftir að hafa komist að þeirri niðurstöðu að hann ætti sér ekki framtíð í landsliðinu undir stjórn Jorge Jesus. Ástæðan er sögð vera sú að þjálfarinn hafi svikið loforð sem hann gaf Ronaldo í síðasta landsleikjaglugga.

Framherjinn yfirgaf herbúðir landsliðsins eftir að hafa setið á bekknum allan leikinn gegn Noregi, þrátt fyrir að hafa verið látinn hita upp. Það fór illa í Ronaldo, sem ákvað síðan að hætta með landsliðinu áður en hópurinn fyrir núverandi verkefni var valinn.

Portúgalska sambandið vill þó kveðja Ronaldo með viðeigandi hætti, þótt enn sé óljóst hvort hann muni spila sérstakan kveðjuleik í framtíðinni.

Í leiknum gegn Danmörku á morgun munu leikmenn Portúgals ganga inn á völlinn í treyjum merktum númerinu sjö, auk þess sem Ronaldo verður heiðraður á sjöundu mínútu leiksins.

Þá hefur einnig verið ákveðið að nota ekki sérstakt herbergi Ronaldo í búningsklefanum á æfingasvæði landsliðsins í þessu verkefni.

Samkvæmt erlendum fjölmiðlum er ekki búist við því að Ronaldo verði sjálfur viðstaddur athöfnina, en Portúgal hefur þegar tryggt sér sæti í átta liða úrslitum Þjóðadeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.