05.11.26 - 10:38
Kári Snorrason
Ronaldo hættur með landsliðinu (Staðfest)

Byrjaði alla leiki liðsins á HM í sumar.

Mynd: EPA

Leikja- og markahæsti landsliðsmaður frá upphafi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Cristiano Ronaldo hefur lagt landsliðsskóna á hilluna. Hann tilkynnir um ákvörðun sína með dramtísku myndskeiði sem hann birti á samfélagsmiðlum sínum.
Ronaldo lék 234 landsleiki fyrir Portúgal og skoraði í þeim 146 mörk, en hvort tveggja er met. Hann varð Evrópumeistari með liðinu árið 2016.
„Kæra portúgalska þjóð, nú er komið að því að ég skili treyju númer sjö í landsliðinu okkar. Mér fannst hún aldrei tilheyra mér einum, en í 23 ár naut ég þeirra forréttinda og bar þá ábyrgð að klæðast henni inn á leikvanga um allan heim. Nú er kominn sá tímapunktur að rétta kyndilinn áfram,“ sagði Ronaldo meðal annars í myndbandinu sem hann birti á samfélagsmiðlum sínum.
Mikið hefur gustað um Ronaldo og landsliðið síðustu misseri en hann yfirgaf herbúðir Portúgals í síðasta landsleikjaglugga í kjölfar þess að vera ónotaður varamaður gegn Noregi í Þjóðadeildinni.
Hann var í kjölfarið settur í 30 daga bann af portúgalska sambandinu en Ronaldo var vægast sagt ósáttur út í Jorge Jesús, þjálfara liðsins, og sakaði hann um að svíkja loforð.

Portugal estará sempre em mim https://t.co/dnFj51rxmh
— Cristiano Ronaldo (@Cristiano) November 5, 2026