Fotbolti.net
13.11.26 - 20:25
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu Orra bæta við öðru marki eftir frábæra sendingu Harðar

Orri Steinn skoraði annað mark Íslands

Orri Steinn skoraði annað mark Íslands

Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
Ísland er komið í þægilega 2-0 forystu gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni, en Orri Steinn Óskarsson tvöfaldaði forystuna eftir stórkostlega sendingu frá Herði Björgvin Magnússyni.
Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 2 Ísland
Andri Lucas Guðjohnsen kom Íslandi yfir á 17. mínútu með marki úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Orra Steini.

Aðeins fjórum mínútum síðar tvöfaldaði Orri forystuna eftir frábæra langa sendingu Harðar Björgvins yfir vörn Búlgara. Orri slapp einn í gegn, keyrði að markinu og renndi boltanum snyrtilega undir markvörð heimamanna.

Með markinu jafnaði Orri við Andra Lucas í fjölda landsliðsmarka, en þeir hafa nú báðir skorað þrettán mörk fyrir íslenska landsliðið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.