Fotbolti.net
13.11.26 - 20:01
Brynjar Ingi Erluson

Stefán Teitur fór meiddur af velli - „Það er ekki gott“

Stefán Teitur fór meiddur af velli - „Það er ekki gott“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
Stefán Teitur Þórðarson er farinn meiddur af velli gegn Búlgaríu eftir aðeins tæplega átta mínútna leik.
Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 2 Ísland
Skagamaðurinn hóf leikinn í hjarta varnarinnar við hlið Daníels Leós Grétarssonar, en settist skyndilega niður í grasið og kallaði eftir skiptingu.

Hann virðist hafa meiðst aftan í læri og kom Hörður Björgvin Magnússon inn á í hans stað.

„Sjáum hann hrista hausinn. Það er ekki gott sérstaklega þar sem við sáum enga tæklingu þá vitum við yfirleitt að það er eitthvað vöðvavesen sem erfitt er að hlaupa af sér,“ sagði Kjartan Henry Finnbogason í útsendingu Sýnar.

Hörður er að leika sinn 58. landsleik og eru því nú tveir örvfættir miðverðir í íslensku vörninni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.