Fotbolti.net
14.02.25 - 10:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Sjáum úr hverju liðið er gert eftir meiðsli Havertz"

„Sjáum úr hverju liðið er gert eftir meiðsli Havertz"
Canon

Mynd: Getty Images

Kai Havertz, framherji Arsenal, meiddist í æfingabúðum liðsins í Dúbaí á dögunum. Hann er á leið í aðgerð og verður frá út tímabilið. Havertz meiddist í lok æfingar þegar hann teygði sig til að stöðva skot og fann fyrir meiðslum í læri.

Fyrir á meiðslalistanum voru þeir Bukayo Saka, Gabriel Jesus og Gabriel Martinelli. Arsenal er því ansi þunnskipað fram á við.
Arsenal staðfestir meiðsli Havertz - Á leið í aðgerð
TENGT EFNI

Arsenal staðfestir meiðsli Havertz - Á leið í aðgerð

„Þetta var búið að vera frábært í Dúbaí, vorum að hlaða batteríin, æfðum og tengdum við náttúruna og annað umhverfi. Svo komu meiðslin upp á óvæntan hátt, það er högg út af þeim meiðslum sem við glímum við fyrir," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, á fréttamannafundi í dag.

„Sem betur fer höfum við farið í gegnum miið á þessu tímabili, þetta er áskorun. Við elskum það. Sjáum nú til úr hverju liðið er gert," sagði Arteta sem segist skoða alla möguleika, þar á meðal að fá inn leikmann í hópinn sem er án félags og má því koma utan félagaskiptaglugga.

Hann sagði á fundinum að hinn ungi Ethan Nwaneri gæti spilað sem fremsti maður. Nwaneri, Leandro Trossard og Raheem Sterling eru þeir sóknarmenn sem hafa spilað í deildinni sem eru heilir. Arteta segir að Saka sé ekki orðinn klár í slaginn en varnarmaðurinn Ben White gæti verið í hópnum á morgun.

Framundan er leikur gegn Leicester á útivelli í hádeginu á morgun.

<b>Enski boltinn</B> - Sá síðasti í Guttagarði, töfrar í bikar og vesen á City

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.