Fotbolti.net
14.09.21 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

Cavani fór ekki með til Sviss vegna meiðsla

Edinson Cavani.

Edinson Cavani.

Canon

Mynd: EPA

Í dag klukkan 16:45 leikur Manchester United gegn Young Boys í Sviss í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Úrúgvæski sóknarmaðurinn Edinson Cavani ferðaðist ekki með United til Sviss en hann er enn að jafn sig á smávægilegum meiðslum sem hann hlaut á æfingu í síðustu viku.
Cavani meiddist í undirbúningi fyrir leikinn gegn Newcastle sem Rauðu djöflarnir unnu 4-1.

Ole Gunnar Solskjær segir að Cavani verði frá í viku eða svo.

Hinn nítján ára Anthony Elanga er meðal leikmanna sem ferðuðust í leikinn. Cristiano Ronaldo, maðurinn sem allir eru að tala um, fór einnig með.

Sjá einnig:
Myndir: Man Utd ferðast til Sviss
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.