Fotbolti.net
14.09.24 - 16:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

England: Liverpool tapaði á heimavelli - Haaland með tvennu

Elanga og Hudson-Odoi fagna markinu á Anfield.

Elanga og Hudson-Odoi fagna markinu á Anfield.

Canon

Mynd: Getty Images

Fimm leikjum var rétt í þessu að ljúka í ensku úrvalsdeildinni. Nottingham Forest gerði sér lítið fyrir og lagði Liverpool á Anfield og Erling Braut Haaland skoraði tvennu í endurkomusigri Manchester City á heimavelli gegn Brentford.

Það var Callum Hudson-Odoi sem reyndist hetja Forest þegar hann skoraði með frábæru skoti á 72. mínútu eftir undirbúning frá Anthony Elanga. Liverpool var talsvert meira með boltann í leiknum en þrátt fyrir fimmtán tilraunir og sjö skot á markið tókst heimamönnum ekki að koma boltanum í mark gestanna.

Brentford komst yfir strax í byrjun leiks á Etihad leikvanginum en Englandsmeistararnir voru búnir að snúa leiknum um hálftíma síðar. Erling Haaland skoraði bæði mörk City og er kominn með níu mörk í fyrstu fjórum umferðunum. Seinna markið kom eftir stoðsendingu frá Ederson sem er markvörður City. City er eina liðið í deildinni með fullt hús stiga.

Þrír leikir enduðu með jafntefli; markalaust var hjá Brighton og Ipswich, Jean-Philippe Mateta bjargaði stigi fyrir Crystal Palace gegn Leicester og Danny Ings jafnaði fyrir West Ham í lokin gegn Fulham á útivelli.

England: Vítavarslan gjörbreytti leiknum - Brereton Díaz setti leiðinlegt met
TENGT EFNI

England: Vítavarslan gjörbreytti leiknum - Brereton Díaz setti leiðinlegt met

Brighton 0 - 0 Ipswich Town

Crystal Palace 2 - 2 Leicester City
0-1 Jamie Vardy ('21 )
0-2 Stephy Mavididi ('46 )
1-2 Jean-Philippe Mateta ('47 )
2-2 Jean-Philippe Mateta ('90 , víti)

Fulham 1 - 1 West Ham
1-0 Raul Jimenez ('24 )
1-1 Danny Ings ('90 )

Liverpool 0 - 1 Nott. Forest
0-1 Callum Hudson-Odoi ('72 )

Manchester City 2 - 1 Brentford
0-1 Yoane Wissa ('1 )
1-1 Erling Haaland ('19 )
2-1 Erling Haaland ('32 )
Haaland með tvennu.

Haaland með tvennu.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Chelsea6+210
6Leeds6+39
7Liverpool5+39
8Everton5+39
9Ipswich Town6-39
10Hull City5+28
11Newcastle508
12Man Utd606
13Nott. Forest5-15
14Aston Villa6-55
15Crystal Palace5-54
16Sunderland6-64
17Bournemouth6-63
18Tottenham6-63
19Coventry5-93
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.