Fotbolti.net
14.11.26 - 00:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá Plovdiv

Aron Einar: Bara mínir nánustu vita hvað ég þurfti að ganga í gegnum

Auglýsing
Aron Einar: Bara mínir nánustu vita hvað ég þurfti að ganga í gegnum
Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
„Bara fagmannlegur leikur. Við vissum að fyrstu tíu yrði kannski smá orka í þeim og við þurftum svolítið að nýta bara reynslu, halda í boltann og kæfa það svolítið," sagði Aron Einar Gunnarsson við Fótbolta.net eftir sigurinn gegn Búlgaríu í kvöld.

Aron Einar kom inn á í seinni hálfleik og spilaði með því sinn 112. landsleik. Ef hann kemur inn á gegn Lúxemborg á mánudag mun hann jafna leikjamet Birkis Bjarnasonar og verður það jafnframt kveðjustund Arons með landsliðinu.
Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 5 Ísland
„Þeir unnu náttúrulega síðasta leik á móti Lúxemborg 2-0 þannig að við áttuðum okkur á því að þeir kæmu kannski með smá orku í þetta. En svona stemningin var bara svolítið dræm hjá þeim, fannst mér. En bara jákvætt, að við séum, séum að skapa svona færi."

„Nú segir þú kannski: Já, andstæðingurinn blablabla. En en við spiluðum bara það vel að við hleyptum þeim aldrei inn í leikinn. Þó að þetta sé C-deild og allt það þá var þetta virkilega fagmannleg frammistaða, fengum fullt af færum og fengum ekki mörg færi á okkur. Og það er það sem að við þurfum að læra og þetta gefur okkur kannski sjálfstraust. Ég held það sé fullt af klippum sem að coach vill fara yfir og læra af þó þetta hafi verið svona nokkuð „auðveldur" leikur ef svo má segja."


Síðasti útileikurinn með landsliðinu, hvernig var að koma inn á?

„Ég er búinn að reyna einhvern veginn að upplifa þetta þannig að ég ætla að vera í núinu og njóta og nota skynfærin og taka þetta allt inn og þannig. Auðvitað, ég væri alveg að ljúga að þér, ef ég myndi segja þér að þetta væri bara eins og hver annar gluggi sko. En fyrir mér er þetta verkefni hálfnað og við vitum það náttúrulega að Eistarnir unnu og þeir eru enn á hælunum okkar og við þurfum að klára okkar verkefni á mánudaginn. Fyrir mér er ég ekki að dvelja við þessi úrslit eða hvort að ég hafi komið inn á eða ekki"

„Þetta bara æxlaðist þannig að ég kom inn á. Ég meina, Höddi kemur inn á fyrir Stebba og Danni var á gulu spjaldi, við vildum ekki missa hann í leikbann. þannig að þú veist. Það eru bara ýmsar ástæður og það sem þjálfarateymi þarf að hugsa þegar þeir eru að skipta. Ég held að á endanum hafi þetta bara þróast þannig í dag. Þetta er örugglega geðveikt boring viðtal,"
sagði Aron og brosti.

Hvernig heldurðu að þetta verði á mánudaginn?

„Þurfum við ekki bara að leyfa því að gerast? Ég get bara undirbúið mig sem best og ef ég spila þá spila ég. En þó að þetta sé C-deild þá þurfum við að átta okkur á því að við þurfum að læra að loka svona hlutum og við þurfum að gera það svo sannarlega á mánudaginn."

„En það eru miklar tilfinningar í þessu, ég get alveg sagt þér það. Ég er búinn að þjást heilan helling, búinn að leggja allt í sölurnar og og ég held að það sé bara fjölskylda mín og mínir bestu vinir sem átta sig á því hvað ég þurfti að ganga í gegnum og leggja á mig til þess að vera alltaf til staðar til þess að leggja hundrað prósent fram."

„Þannig að auðvitað verða miklar tilfinningar á mánudaginn en þetta er fyrst og fremst verkefni og ég er harður liðsmaður sem að legg allt í sölurnar fyrir liðið. Við ætlum bara að klára þetta á mánudaginn. Þá getum við bara fagnað saman eftir leik, er það ekki?"
sagði Aron Einar.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum efst
Aron Einar: Bara mínir nánustu vita hvað ég þurfti að ganga í gegnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Einar: Bara mínir nánustu vita hvað ég þurfti að ganga í gegnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Einar: Bara mínir nánustu vita hvað ég þurfti að ganga í gegnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.