Fotbolti.net
14.11.26 - 08:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá Plovdiv

Í fyrsta sinn í 14 ár hjá Íslandi

Haldið hreinu fjórum sinnum í röð

Auglýsing
Í fyrsta sinn í 14 ár hjá Íslandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Hákon Rafn Valdimarsson hélt marki íslenska landsliðsins hreinu í gær og var það í fjórða sinn í röð sem andstæðingur Íslands nær ekki að skora.

Fjórtán ár eru frá því að Ísland hélt janfoft hreinu í röð eins og Víðir Sigurðsson vakti athygli á eftir leikinn.
Fyrsta skipti í fjórtán ár hjá Íslandi
TENGT EFNI

Fyrsta skipti í fjórtán ár hjá Íslandi

Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 5 Ísland
Fótbolti.net ræddi við markvörðinn, sem hafði það nokkuð náðugt í markinu, eftir leikinn gegn Búlgaríu.

„Tilfinningin er bara góð. Kannski ekki mikið að gera (hjá mér) en við gerðum hlutina vel og gáfum ekki mikið á okkur."

Var eitthvað sem kom þér á óvart?

„Nei, þannig séð ekki. Þeir spiluðu svipað og þegar við spiluðum við þá heima. Kannski númer 11 hjá þeim var meira frammi eða í tíunni en heima var hann á kantinum. Hann var líflegur og var að vinna vel í kringum stóra framherjann þeirra. En allt annað var mjög svipað og maður bjóst við."

Þú metur þetta bara sem þægilega vakt aftast?

„Já, þannig séð. Það var kannski eitt skot þarna í seinni hálfleik sem við vorum aðeins of seinir, sem var kannski aðalfærið þeirra. En annars gerðum við allt bara nokkuð vel."

Hvernig metur þú frammistöðu þína í síðustu leikjum?

„Bara fínt, núna bara halda því áfram og klára síðasta leikinn vel. Við vonandi vinnum þann leik," sagði Hákon Rafn.
Í fyrsta sinn í 14 ár hjá Íslandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Í fyrsta sinn í 14 ár hjá Íslandi
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.