Fotbolti.net
14.11.26 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson

„Tólf leikja bann getur virst léttvægt"

„Tólf leikja bann getur virst léttvægt"
Canon

Mynd: EPA

Alvaro Cervera, þjálfari fótboltaliðs Tenerife, segir að tólf leikja bannið sem markvörðurinn Jesús Owono fékk fyrir ljótt brot í byrjun nóvember, sem varð til þess að Jesús de Miguel lét lífið, geti virst léttvægt.
Leikmaður lést eftir að hafa farið í hjartastopp í leik á Spáni
TENGT EFNI

Leikmaður lést eftir að hafa farið í hjartastopp í leik á Spáni

De Miguel fór í hjartastopp eftir afar harkalegan árekstur við Owono og er niðurstaðan ótrúlega sorgleg. Owono sjálfur er gjörsamlega í molum og er ekki hægt að búast við að hann snúi aftur á völlinn strax eftir tólf leikja bannið, sem er þyngsta mögulega refsing fyrir brot af þessu tagi. Hann er í sérstakri áfallameðferð með sálfræðiteymi og er framtíð hans óljós.

„Eins og á öllum sviðum lífsins eru lög og reglur sem þarf að virða," sagði Cervera á fréttamannafundi fyrir fyrsta leik liðsins frá andlátinu, þegar Tenerife mætir andstæðingum frá borginni Ceuta sem er orðin heimsþekkt eftir mikið áhlaup Marokkóbúa í leit að betra lífi í lok júlí.

„Tólf leikja bannið var gefið eftir settum refsiramma sem gerir ekki ráð fyrir þessum afleiðingum. Hvað sem ég get sagt um þetta atvik er bara mín persónulega skoðun og ég kýs að halda henni út af fyrir mig.

„Refsingin getur virst vera léttvæg samanborin við önnur brot, en í raunveruleikanum þá held ég að reglugerðin gefi einfaldlega ekki svigrúm fyrir þyngri refsingu."


Owono er 25 ára gamall og er landsliðsmarkvörður Miðbaugs-Gíneu. Hann á 47 landsleiki að baki en gaf skiljanlega ekki kost á sér í landsleikjahlénu er samlandar hans spila mikilvæga leiki í undankeppni Afríkukeppninnar.
„Tólf leikja bann getur virst léttvægt"
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.