Fotbolti.net
14.11.26 - 22:23
Elvar Geir Magnússon

Versti dómari sem Mourinho hefur séð dæmir U21 leik Íslands

Rúmenski dómarinn Marian Barbu dæmir A-landsleik Íslands gegn Lúxemborg.

Rúmenski dómarinn Marian Barbu dæmir A-landsleik Íslands gegn Lúxemborg.

Canon

Mynd: UEFA

Eimskip
Ísland tekur á móti Lúxemborg klukkan 17 á mánudag á Laugardalsvelli.

Ísland er á toppi riðils síns í C-deild Þjóðadeildarinnar en er aðeins með tveggja stiga forskot á Eistland fyrir lokaumferð riðilsins. Á meðan Ísland leikur gegn Lúxemborg mun Eistland etja kappi við Búlgaríu.

Rúmenar munu sjá um dómgæsluna í leiknum. Aðaldómarinn heitir Marian Barbu og er 38 ára. Á síðasta tímabili dæmdi hann sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni, viðureign Slavia Prag og Bodö/Glimt, en það er hans eini leikur í keppninni til þessa.
Landsliðið mætt heim í kuldann - Ekkert frost í vellinum
TENGT EFNI

Landsliðið mætt heim í kuldann - Ekkert frost í vellinum

Ítalskur dómari á U21 leiknum
U21 lið Íslands gerði á fimmtudag 1-1 jafntefli við Grikkland í fyrri leik liðanna í umspili fyrir EM. Liðin mætast aftur í Grikklandi á mánudag og hefst sá leikur kl. 17:00. Hann er spilaður á sama tíma og A-landsleikurinn.

Ítalskur dómari verður á leiknum í Grikklandi. Hann heitir Daniele Chiffi og er 41 árs. Árið 2023 fékk Jose Mourinho, þá stjóri Roma, bann og sekt fyrir ummæli um Chiffi.

„Þetta er versti dómari sem ég hef séð á mínum ferli," sagði Mourinho. „Trúið mér, ég hef lent í mörgum slæmum dómurum. Hann er hræðilegur og myndar engin mannleg tengsl við neinn. Hann er með enga samkennd."

Ísland - Lúxemborg
Referee: Marian Alexandru Barbu ROU
Assistant Referee 1: Mircea Mihail Grigoriu ROU
Assistant Referee 2: Imre Laszlo Bucsi ROU
Fourth Official: Andrei Florin Chivulete ROU
Video Assistant Referee: Adrian Sorin Costreie ROU
Assistant Video Assistant Referee: Radu Marian Petrescu ROU
UEFA Referee Observer: Nenad Djokic SRB
UEFA Delegate: Nils Öyvind Fisketjönn NOR

U21: Grikkland - Ísland
Referee: Daniele Chiffi ITA
Assistant Referee 1: Alberto Tegoni ITA
Assistant Referee 2: Domenico Palermo ITA
Fourth Official: Giovanni Ayroldi ITA
UEFA Referee Observer: Rien Koopman NED
UEFA Delegate: Peter Kovác SVK
Daniele Chiffi.

Daniele Chiffi.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.