Fotbolti.net
15.04.25 - 11:07
Elvar Geir Magnússon

Tindall tilbúinn að stýra Newcastle út tímabilið

Tindall tilbúinn að stýra Newcastle út tímabilið
Canon

Mynd: EPA

Mögulegt er að Jason Tindall muni klára tímabilið með stjórnartaumana hjá Newcastle en Eddie Howe er á sjúkrahúsi að jafna sig á lungnabólgu.

„Það er enginn nákvæmur tímarammi á hvenær Eddie kemur aftur. Hann er í góðum höndum og einn dagur tekinn í einu. Hann snýr aftur þegar hann er klár og ég er tilbúinn að leysa hann af þangað til," segir Tindall sem er aðstoðarmaður Howe.

Tindall var á hliðarlínunni í sigrinum gegn Manchester United um síðustu helgi. Hann segist ekki hafa rætt almennilega við Howe síðan hann var lagður inn á spítala en þeir skipst á skilaboðum.
Howe með lungnabólgu
TENGT EFNI

Howe með lungnabólgu

„Það sem er mikilvægast fyrir hann er að hvílast og jafna sig, hann á ekki að hafa áhyggjur af neinu öðru en að verða betri. Þegar honum fer að líða betur þá munum við tala betur saman."

Newcastle er í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.