| mið 15.apr 2026 17:00 Mynd: ÍBV |
|
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 8. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að ÍBV muni enda í áttunda sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. Nýliðar ÍBV bjarga sér frá falli ef spáin rætist.
Allison Grace Lowrey var óstöðvandi í Lengjudeildinni í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Olga Sevcova er með mikla reynslu úr Bestu deildinni.
Mynd/Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ÍBV, 34 stig
9. Grindavík/Njarðvík, 21 stig
10. Fram, 17 stig
Um liðið: ÍBV er komið aftur á stóra sviðið eftir tveggja ára viðkomu í Lengjudeildinni, en það passar einhvern veginn ekki að Eyjaliðið sé ekki í efstu deild. Félagið býr yfir ríkri sögu í kvennaboltanum á Íslandi liðið á að vera hluti af Bestu deildinni. Eyjakonur gerðu vel í fyrra þegar þær tryggðu sér sæti á ný í efstu deild, en það var margt sem small hjá þeim. Þær duttu á réttu útlendingana sem höfðu ekki bara gæði inn á vellinum heldur höfðu líka jákvæð áhrif á hópinn í heild. Það skiptir oft meira máli en margir gera sér grein fyrir. Það sem er mikilvægt fyrir ÍBV er að þessir leikmenn eru áfram og það gefur liðinu ákveðinn stöðugleika sem nýliðar þurfa oft á að halda. Spurningin er hins vegar hversu fljótt þær ná að aðlagast tempóinu aftur í Bestu deildinni. Munurinn á deildunum er til staðar og það þarf ekki mikið til að lenda í vandræðum ef byrjunin er erfið.
Þjálfarinn: Jón Óli Daníelsson tók aftur við ÍBV þegar liðið féll í Lengjudeildina fyrir tímabilið 2024 og gerði langan samning við félagið. Jón Óli er öllum hnútum kunnugur hjá félaginu en hann þjálfaði meistaraflokk kvenna frá 2007 til 2014 og svo aftur 2019 ásamt því að hafa verið yfirþjálfari félagsins. Síðast gekk liðinu vel undir stjórn Jóns Óla - var meðal annars í toppbaráttu í efstu deild - og félagið er að vonast til að það verði þannig aftur núna. Sigríður Lára Garðarsdóttir, ein besta fótboltakona sem hefur komið frá Vestmannaeyjum, er aðstoðarþjálfari sem er mjög skemmtilegt.
Álit Magga
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deild kvenna. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan. Magnús verður með hlaðvarpsþáttinn Uppbótartímann á Fótbolta.net í sumar þar sem farið verður yfir kvennaboltann á Íslandi á mannamáli.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Reynsla þjálfarans vegur þungt
„Undirbúningstímabil eru alltaf erfið fyrir ÍBV og nánast vonlaust að lesa í liðið en í ár er liðið lítið breytt frá síðasta tímabili. Við erum með hágæða erlenda leikmenn í bland við ungar eyjastelpur og er það blanda sem virkaði vel í fyrra."
„Ef ÍBV spilar alla leiki eins og gegn blikum í undanúrslitum Mjólkurbikarsins að þá verða þær töluvert á töflunni. Þáttur þjálfarans í að halda liðinu uppi mun spila stórt hlutverk og andi Heimaeyjar kemur liðinu langt."
„Leiftrandi sóknarbolti í bland við þéttann varnarleik á Hásteinsvelli er eitthvað sem heimamenn sætta sig við."
„Það verður slor og það verður skítur en þegar talið verður upp úr pokanum í haust að þá verður tónlist í hvítu tjöldunum."
Lykilmenn: Olga Sevcova og Allison Lowrey
Þau sem hafa fylgst með kvennaboltanum síðustu ár vita hversu góður leikmaður Olga Sevcova er. Hún var virkilega góð þegar hún spilaði með ÍBV í Bestu deildinni og hún hefur burði til að vera með betri leikmönnum deildarinnar. Hún er með gríðarlega mikla hæfileika framarlega á vellinum og Eyjafólk á að setja kröfur á að hún standi sig í sumar. Allison Lowrey er sóknarmaður sem var gjörsamlega óstöðvandi í Lengjudeildinni og verður virkilega áhugavert að fylgjast með henni reyna fyrir sér í Bestu deildinni með Eyjakonum í sumar. Hún skoraði í fyrra 25 mörk í 18 leikjum í Lengjudeildinni og var það risastórt fyrir ÍBV að halda henni.
Gaman að fylgjast með: Milena Mihaela Patru
Mjög efnilegur leikmaður sem kom frábærlega inn í liðið í Lengjudeildinni í fyrra þar sem hún skoraði sex mörk í tíu leikjum. Hún er fædd árið 2011 en henni tókst að skora þrennu í leik í Lengjudeildinni í fyrra, aðeins 14 ára gömul. Hún hefur spilað vel í vetur og kemur til með að fá hlutverk í Eyjaliðinu í sumar. Stelpa sem hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands og er hluti af efnilegum kjarna sem er að koma upp hjá ÍBV.
Komnar:
Fridrikka Maria Clementsen frá Færeyjum
Arden La-Rose frá Bandaríkjunum
Farnar:
Fyrstu fimm leikir ÍBV:
25. apríl, Fram - ÍBV (Lambhagavöllurinn)
30. apríl, ÍBV - Víkingur R. (Hásteinsvöllur)
5. maí, Valur - ÍBV (N1 völlurinn Hlíðarenda)
10. maí, ÍBV - Þór/KA (Hásteinsvöllur)
19. maí, FH - ÍBV (Kaplakrikavöllur)
Spámennirnir: Alexander Tonini, Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Anton Freyr Jónsson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Kári Snorrason, Magnús Haukur Harðarson, Snæbjört Pálsdóttir, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.


