15.11.26 - 10:22
Brynjar Ingi Erluson
Haaland tjáði sig um City-málið: Á ég að svara þessu?

Erling Braut Haaland

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Erling Braut Haaland

Mynd: EPA
Norski framherjinn Erling Braut Haaland tjáði sig í fyrsta sinn um mál ensku úrvalsdeildarinnar gegn Manchester City í viðtali við norska miðilinn TV2 eftir 3-1 sigur Noregs á Wales í Þjóðadeildinni um helgina.

TENGT EFNI
Manchester City fundið sekt í nánast öllum ákæruliðum
Haaland hefur, líkt og aðrir leikmenn Man City, lítið viljað tjá sig um málið sem snýr að brotum félagsins á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar á árunum 2009 til 2018.
City var fundið sekt um brot í 114 af 115 ákæruliðum, en félagið hefur áfrýjað niðurstöðunni. Búist er við að áfrýjunarferlið taki nokkurn tíma og að niðurstaða liggi ekki fyrir fyrr en í byrjun næsta árs.
City bannaði fjölmiðlum að spyrja út í málið eftir að fyrsti úrskurðurinn lá fyrir, en nú virðist sem leikmenn félagsins hafi fengið meira svigrúm til að tjá sig opinberlega.
Haaland var spurður út í málið og gerði sér lítið fyrir og fór að telja upp hvar hann hefði verið að spila á þeim árum sem rannsóknin nær til.
„Rannsóknin nær yfir tímabilið 2009 til 2018. Árið 2009 spilaði ég með U9 hjá Bryne. Árið 2010 var ég í U10, árið 2011 í U11 og árið 2012 í U12. Síðan var ég í U13 árið 2013. Eigum við að halda áfram? Við þurfum ekki allan listann,“ sagði Haaland, áður en hann hélt engu að síður áfram að telja upp árin.
Hann viðurkenndi síðan að hafa lítið kynnt sér málið og ætti því erfitt með að svara spurningum um það.
„Þetta er spurning sem ég á erfitt með að svara því þetta er lagalegt mál. Þetta er mál milli ensku úrvalsdeildarinnar og Manchester City sem óháð nefnd sér um. Á ég að svara þessu? Ég er ekki svo viss um það, en þetta er erfið spurning þegar ég veit ekki svo mikið um málið. Ég geri ráð fyrir að svörin muni koma, en ég veit ekki hvenær og hef ekki kynnt mér þetta sérstaklega.“
Mikið hefur verið rætt um framtíð Haaland ef endanleg niðurstaða verður City í óhag, enda gæti félagið átt yfir höfði sér þunga refsingu og jafnvel fall niður um deild.
Norðmaðurinn virðist þó ekki hafa miklar áhyggjur af eigin framtíð og bendir á að hann hafi þegar sýnt með afgerandi hætti hvar hann vilji vera.
„Ef ég á að vera fullkomlega hreinskilinn þá er ég einbeittur að því að standa mig fyrir Man City. Þetta er félag sem ég skrifaði undir fimm ára samning við árið 2022 og síðan níu og hálfs árs samning í lok árs 2024. Það segir allt sem segja þarf um þetta mál. Ég er leikmaður Man City og er ótrúlega ánægður þar.“
„Ég skil að þú viljir fá einhverja fyrirsögn, en eins og ég sagði þá skrifaði ég undir langtímasamning árið 2024. Ég held að við getum allir verið sammála um að ég tók góða ákvörðun þegar ég gekk til liðs við City árið 2022. Ég myndi ekki endilega segja það sjálfur, en horfðu á titlana sem ég hef unnið og hvernig ég hef þróast sem leikmaður, bæði innan vallar og utan,“ sagði Haaland í lokin.

???????? WATCH: Erling Haaland asked about @ManCity charges for the first time: https://t.co/RaOkczrPID
— James Wathland (@JamesWathland) November 14, 2026

Mynd: EPA

Mynd: EPA