25.09.26 - 14:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Manchester City fundið sekt í nánast öllum ákæruliðum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Óháð nefnd hefur fundið Manchester City sekt í nánast öllum ákæruliðum en stórt mál var höfðað gegn félaginu og meintum brotum þeirra á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar.
Það er David Ornstein hjá The Athletic sem greinir frá og segir að ekki sé búið að ákveða hver refsingin verður og málið er enn í ferli.
Í grein Ornstein segir að City hafi verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum. Búist er við því að City áfrýji niðurstöðunni en félagið vill ekki tjá sig við fjölmiðla að svo stöddu.
Málið hefur verið lengi í ferli og sagði Manchester City í febrúar 2023 að félagið væri hissa á ákærunum.
City var ákært fyrir fjölda brota eftir ásakanir um meint brot voru rannsakaðar. Brotin áttu sér stað á árunum 2009-2018 og tók óháð nefnd málið til enn frekari rannsónar. City var ásakað um að hafa ekki gefið upp réttar fjárhagsupplýsingar. Der Spiegel birti upplýsingar sem höfðu lekið frá City í nóvember 2018 og þá fór málið fyrir alvöru á flug. City hefur alltaf neitað sök í máli.
City hefur unnið átta Englandsmeistaratitla, orðið fjórum sinnum enskur bikarmeistari, sjö sinnum deildabikarmeistari og einu sinni Evrópumeistari í eigendatíð Sheikh Mansour sem keypti félagið árið 2008.

TENGT EFNI
Réttarhöld aldarinnar að hefjast
???? EXCLUSIVE: Manchester City found guilty on virtually all charges relating to breaches of Premier League financial regulations. #MCFC expected to appeal against verdict issued by independent commission. Sanctions undecided, process ongoing @TheAthleticFC https://t.co/Muxqp4beK9
— David Ornstein (@David_Ornstein) September 25, 2026