Fotbolti.net
15.11.26 - 16:01
Elvar Geir Magnússon
- Laugardalsvelli

Löng nótt hjá starfsmönnum Laugardalsvallar

Auglýsing
Vallarstarfsmenn á Laugardalsvelli að störfum.

Vallarstarfsmenn á Laugardalsvelli að störfum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
Búið er að taka hitadúkinn, pulsuna frægu, af Laugardalsvellinum í bili enda æfingadagur í dag. Á morgun klukkan 17 verður leikur gegn Lúxemborg í Þjóðadeildinni og er íslenska landsliðið að æfa á vellinum þegar þetta er skrifað.

Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, spjallaði við Fótbolta.net áðan en það hefur verið ansi mikið að gera hjá honum og hans starfsmönnum í aðdraganda leiksins.
24 gráðu munur milli leikja íslenska liðsins
TENGT EFNI

24 gráðu munur milli leikja íslenska liðsins

Jæja, Kristinn, það er leikur á morgun. Bara hvernig er staðan á vellinum hérna í kuldanum?

„Það eru tvær æfingar eftir í dag. Svo setjum við dúkinn aftur yfir nóttina og hitum völlinn meira og svo leikur á morgun," segir Kristinn en það tekur um 2-3 klukkustundir að setja pulsuna á.

„Við tókum tvo tíma að taka þetta niður og undirbúa æfinguna. Og ætli það sé ekki svona þrír tímar að setja upp aftur," segir Kristinn. Hitakerfið undir vellinum hefur verið í fullum gangi. Hvernig er staðan á vellinum?

„Hann er bara nokkuð góður. Hann er alveg mjúkur og sjálft grasið er ófrosið. Það er löng nótt framundan og það er búið að vera nóg að gera."
Löng nótt hjá starfsmönnum Laugardalsvallar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.