Fotbolti.net
15.11.26 - 17:21
Elvar Geir Magnússon

„Mjög leiðinlegt að missa afa“ - Sorgarbönd og þögn á morgun

Ísak Bergmann Jóhannesson.

Ísak Bergmann Jóhannesson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Guðjón Þórðarson lést aðfaranótt föstudags, 71 árs gamall. Guðjón þjálfaði meðal annars íslenska landsliðið með frábærum árangri.

Íslenska landsliðið mun leika með sorgarbönd gegn Lúxemborg á morgun og þá verður mínútuþögn fyrir leikinn.

Guðjón var afi Ísaks Bergmanns Jóhannessonar, miðjumanns íslenska landsliðsins. Ísak segir að Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari hefði gefið sér faðmlag þegar hann heyrði fréttirnar en þá var landsliðið í Búlgaríu.

„Við vissum þetta fyrir Búlgaríuleikinn. Arnar kom og knúsaði mig fyrir leikinn. Það er auðvitað mjög leiðinlegt að missa afa. Hann er náttúrulega goðsögn í íslenskum fótbolta. En maður þarf að vera fókusaður á verkefnið á morgun. Við þurfum að klára þetta vel. En eins og ég segi, bara leiðinlegt að missa afa og svona stóran prófíl í íslenskum fótbolta. Svona er lífið því miður," sagði Ísak á fréttamannafundi í dag.
Arnar minnist Guðjóns - „Hafði mikil áhrif á mig“
TENGT EFNI

Arnar minnist Guðjóns - „Hafði mikil áhrif á mig“

Arnar landsliðsþjálfari tjáði sig einnig um Guðjón á fundinum.

„Af kannski topp tíu stundum á mínum ferli þá eru svona fjórar til fimm mjög tengdar honum. Það eru tveir titlar með Stoke, landsleikur hérna á móti Frökkum, titlarnir með Skagamönnum og svo framvegis. Þetta er bara goðsögn í okkar íþrótt. Mjög merkur maður að falla frá og við munum minnast hans vel á morgun. Þetta verður tilfinningaríkt kvöld á, á morgun, bæði með Guðjón og svo náttúrulega er þetta kveðjuleikur Arons, þannig að við þurfum að passa okkur að hafa tilfinningarnar rétt stilltar en njóta stundarinnar," segir Arnar.

Ísland mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlakeppni C-deildar Þjóðadeildarinnar klukkan 17 á morgun á Laugardalsvelli. Þar getur Ísland innsiglað sigur í riðlinum og komist beint upp í B-deildina að nýju.
Guðjón Þórðarson.

Guðjón Þórðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.