15.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Porro um mikinn áhuga: Stoltur og hamingjusamur

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænski bakvörðurinn Pedro Porro er gríðarlega eftirsóttur en hann er nýlega búinn að skrifa undir nýjan samning við Tottenham Hotspur, sem gildir til sumarsins 2031.

TENGT EFNI
Porro á óskalista þriggja félaga í ensku úrvalsdeildinni
Helstu stórveldi ensku úrvalsdeildarinnar hafa áhuga á honum alveg eins og spænsku risaveldin Barcelona og Real Madrid, sem eru talin heilla hann meira heldur en áframhaldandi dvöl á Englandi.
Porro er 27 ára gamall og er mikilvægur hlekkur í spænska landsliðinu ásamt því að vera lykilmaður hjá Tottenham. Hann var í byrjunarliði Spánverja sem lagði Tékkland að velli fyrir helgi.
„Það er eins og að fá hrós þegar eitt af allra bestu félagsliðum heims sýnir manni áhuga," sagði Porro um áhugann frá Barcelona.
„Ég er mjög hamingjusamur hjá Tottenham og er með samning hér sem mér ber að virða."
Talið er að Tottenham vilji mikinn pening til að selja Porro úr sínum röðum. Hann verður að öllum líkindum dýrasti hægri bakvörður fótboltasögunnar ef Tottenham selur hann næsta sumar. Achraf Hakimi er sá dýrasti í sögunni sem stendur eftir að PSG borgaði tæplega 70 milljónir evra til að kaupa hann úr röðum Inter sumarið 2021.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 10 | +10 | 27 |
| 2 | Brighton | 10 | +19 | 22 |
| 3 | Man City | 10 | +8 | 21 |
| 4 | Liverpool | 10 | +4 | 18 |
| 5 | Chelsea | 10 | +3 | 16 |
| 6 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 7 | Bournemouth | 10 | +2 | 15 |
| 8 | Brentford | 10 | +5 | 14 |
| 9 | Leeds | 10 | +2 | 14 |
| 10 | Aston Villa | 10 | -3 | 13 |
| 11 | Tottenham | 10 | -1 | 12 |
| 12 | Newcastle | 10 | -3 | 12 |
| 13 | Hull City | 10 | 0 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 10 | -5 | 11 |
| 15 | Fulham | 10 | -2 | 10 |
| 16 | Nott. Forest | 10 | -4 | 9 |
| 17 | Coventry | 10 | -9 | 9 |
| 18 | Man Utd | 10 | -5 | 8 |
| 19 | Sunderland | 10 | -9 | 8 |
| 20 | Crystal Palace | 10 | -14 | 7 |